Ægir - 01.02.1992, Side 37
2/92
ÆGIR
89
vegar illa þefjandi. Mjögeinfaldað
má segja að við loftháð niðurbrot
séu myndefnin C02 og H20 en við
oftfirrt niðurbrot séu aðalmynd-
efnin ýmsar lífrænar sýrur, C02,
H2O og H2S. Lífrænu sýrurnar
erotna síðan áfram niður í CH4 og
Loftmengun
Loftmengun frá fiskimjöls-
vMnslu. Lykt og skynjun lyktar
Stesrste mengunarvaldamálið
rá íslenskum fiskiðnaði er án efa
yktarmengunin frá fiskmjölsverk-
®miðjum eða peningalyktin. Sú
yktsem myndastviðframleiðslu á
iskimjöli stafar fyrst og fremst af
oiðurbroti hráefnisins fyrir áhrif
gerla og sjálfmeltingar. Sum þeirra
yktarefna sem losna hafa mjög lág
^ ynmörk þ.e. mjög lítinn styrk
Þarf í andrúmslofti til að maðurinn
? iyktina og það sem gerir
yktareyðinguna enn erfiðari er að
maðurinn skynjar lyktina ekki í
rettu hlutfalli (línulega) við styrk
yktarefnanna í lofti heldur er sam-
andið lógarithmískt. Þetta þýðir
a til að eyða lykt þarf að eyða
nanast öllum efnunum í burtu því
a |.d. 50% minnkun á skyrk lykt-
arefna hefur nánast engin áhrif.
fyktarefnin í reyk frá
'skimjölsverksmiðju
■ .^yktin sem myndast við fram-
slu á fiskimjöli stafar af:
num sem myndast við niður-
r°t fyrir áhrif gerla og sjálf-
meltingar.
• Efnum sem myndast fyrir tilstilli
lta og þá einkum í þurrkurum,
fn yfirgnæfandi meirihluti
ninnar slæmu lyktar frá fiski-
miölsverksmiðjum er útblást-
% Ursloft þurrkaran na.
Pprunalegum lyktarefnum í
nraefninu.
hrá^ Sern myndast v'ð vinnslu á
ae ni sem aðeins er farið að
rotna er mun sterkari en samsvar-
andi lykt frá óskemmdu hráefni.
Þetta er ein af ástæðunum fyrir því
að helstu lyktarefnin eru talin
myndast við rotnun en losna við
þurrkun. Að auki eykst magn
lyktarefna í eldþurrkara vegna
sviðnunar á smágerðu mjölryki
sem myndast þegar efnið byltist
um í þurrkaranum. Talið er hæpið
að verulegt magn af nýjum lyktar-
efnum myndist í gufuþurrkurum.
Fjöldi þeirra efnasambanda sem
mynda lyktina er gríðarlegur og
skiptir væntanlega hundruðum
(21). Þau helstu eru (11):
Köfnunarefnissambönd: Ammón-
íak, amín, skatol, indól og fjöldi
annarra lífrænna köfnunarefnis-
basa.
Brennsteinssambönd: Brennisteins-
vetni, brennsteinstvíoxið, súlfíð,
merkaptanar auka fjölda annarra
lífrænna brennsteinssambanda.
Karbonylsambönd: Aldehyð, ket-
onar.
Uppruni lyktarmengunar
Þrátt fyrir að veruleg lykt geti
stafað frá hráefninu í söfnunar-
tönkunum, sérstaklega ef þeir eru
ekki lokaðir, þá eru það þó hin
ýmsu vinnslustig í verksmiðjunum
sjálfum sem eru mestir lyktarvald-
ar. Langmest af menguninni kem-
ur frá þurrkurum. Samkvæmt
dönskum heimildum (19) er skipt-
ingin sem hér segir:
Hlutfallslegir lyktarvaldar
í fiskmjölsverksmiðju
Þurrkarar 60-80%
Suðuker, pressur,
skilvindur og eimarar 10-20%
Hráefni 10-20%
Kvarnir og mjölblástur 2-5%
Aðferðir við lyktareyðingu
Eitt af vinnslustigunum við
mjölframieiðslu er þurrkun á mjöl-
inu. Þurrkunin er ýmist í eldþurrk-
urum eða gufuþurrkurum, eld-
þurrkarar eru þó mun algengari. í
eldþurrkara er bein snerting milli
heits brennslulofts og mjölsins en í
gufuþurrkurum er um óbeina
snertingu að ræða, varmaflutn-
ingurinn fer fram í gengum hita-
fleti. í grundvallaratriðum er ekki
mikill munur á lyktinni sem berst
frá gufuþurrkurum og eldþurrkur-
um en loftmagnið frá gufuþurrkara
er mun minna (20-30% af loft-
magni frá eldþurrkara) og því við-
ráðanlegra (21).
Aðferðinar sem nota má til að
hreinsa/draga úr lyktinni eru:
(A) Þynning: Með því að hafa há-
an skorstein má tryggja að styrkur
lyktarefna sé minni þegar reykur-
inn (gufan) frá verksmiðjunni nær
niður á jörðina. Þessi aðferð virkar
sérstaklega vel ef um er að ræða
sjávarþorp sem liggja vel í opnu
landslagi. Við bæjarstæði sem eru
umkringd fjöllum eins og t.d. á
Seyðisfirði nær reykurinn ekki allt-
af að berast í burtu við ákveðin
veðurskilyrði, lyktin verður því
mjög megn(21).
(B) Sjóþvottur: Loftið er leitt inn í
kæli/þéttiturn þar sem yfir það er
úðað sjó/vatni. Áhrifin af þessum
þvotti eru þríþætt. í fyrsta lagi er
þetta kæling og í öðru lagi þá
hreinlega þvæst hluti lyktarefn-
anna í burtu og í þriðja lagi þá
þvost rykagnir í burt. Einkum eru
það vatnsleysanleg lyktarefni og
þá aðallega köfnunarefnisbasarnir
sem hreinsast út. Þessi aðferð er
mjög áhrifarík en engu að síður
næst aldrei öll lyktin í burtu með
henni. jafnframt er vert að taka
fram að aðferðin virkar þeim mun
betur eftir því sem hráefnið er
nýrra því þá er hlutfall vatns-
leysanlegra lyktarefna meira en
þegar hráefnið er lélegt sem notað
er í vinnsluna (21).
(C) Brennsla á reyknum: Hægt er
að leiða loftið að eldhólfum katl-
anna og brenna því þar. Mikilvægt