Ægir - 01.04.1992, Blaðsíða 29
4/92
ÆGIR
189
kynkirtla at' heildarþunga af öllum
rernur rannsóknasvæðunum og
par kemur fram að kynkirtlafyll-
I^Sin er mjög svipuð yfir allt árið.
Un er langminnst eftir hrygning-
una þegar komið er fram í júní til
júlí og alveg fram í ágústmánuð,
en á öðrum tímum er hún viðun-
andi. Aftur á móti má reikna meö
því að þó kynkirtlahlutfallið sé
hátt þá eru gæðin rétt fyrir hrygn-
inguna ekki sem best, enda eru
þá egg- og svilmyndun í hámarki.
Þess vegna er reiknað með því að
hentugasti veiðitíminn sé frá því í
september og fram í mars/apríl á
þeim svæðum sem könnuð voru.
Þetta getur þó verið dálítið mis-
munandi milli svæða eins og
dæmin frá ísafjarðardjúpi sýna,
en þar er hrygningin fyrr á ferð-
inni og því gæði hrogna vafasöm
frá febrúar til apríl.
Þegar litur kynkirtla er skoðaóur
eftir árstíma kemur í Ijós að við
Hvítabjarnarey er hlutfall
gul/rauðguls litar hæst í mars/apr-
íl, júní 1990 og febrúar 1991, en
minnst í maí og ágúst (9. mynd a
og b). Við Ölver aftur á móti er
hlutfallið (gul/rauðgulur) hæst í
mars, apríl, júní, júlí og frá októ-
ber til febrúar 1991. Ekki er hægt
að draga áreiðanlegar ályktanir af
þessu, nema hvað Ölver er með
jafn betra litahlutfall yfir árið og
þar af leiðandi meiri gæði. Þegar
þetta er síðan borið saman við
niðurstöður rannsókna í ísafjarð-
ardjúpi þá virðist þaó áberandi
hvað guli liturinn og sá rauóguli
(orange) er ríkjandi nær allt árið
að undanskildum apríl- og
maímánuði. í Hvammsvík eykst
hlutfall gul/ rauðguls litar í mars
1990 og það hlutfall helst út allan
rannsóknartímann (4. mynd).
Talið er að liturinn ráðist einkum
af æti og að nokkru leyti af kyn-
þroska, en einnig af aldri ígulker-
ana. Til dæmis er litur kynkirtla
gamalla ígulkera mjög dökkur og
stundum nær svartur, en aftur á
móti er litur kynkirtla heiðgulur
hjá mjög ungum ígulkerum.
Örverurannsóknir
Tíðni heildarfjölda kólígerla var
nokkuð svipuð í sjósýnum frá öll-
um stöðvum. Tíðni saurkólígerla
var hins vegar langhæst í sýnum
frá Hvammsvík, en fjöldi kólígerl-
anna var í öllum tilfellum mjög