Ægir - 01.04.1992, Side 50
210
ÆGIR
4/92
NÝ
FISKISKIP
vera með aflmestu aðalvélina. Fyrirhugað er að setjð
nýja vinnslulínu í skipið, en nú er það búið
heilfrystingar og vinnslu á karfa og grálúðu. Með nyF'
vinnslulínu verður jafnframt hægt að vinna bolfisk og
settar tilheyrandi Baader vélar o.fi, og þá verðW
íbúðum breytt og hvílum fjölgað. Skipið kemur í stao
Krossvíkur AK (1339), 296 rúmlesta skuttogeta•
smíðaður hjá Sterkoder Mek. Verksted árið 1972
(innfluttur 1973). Jafnframt hverfa úr rekstri á mót'
þessu skipi skuttogarinn Stapavík Sl 5 (1221) °9
trébáturinn Hafrún ÞH 144 (1163).
Höfrungur III AK 250 er í eigu Haraldar Böðvats-
sonar h.f., Akranesi. Skipstjóri á skipinu er Kristjao
Pétursson og yfirvélstjóri Reynir Magnússon. Frath'
kvæmdastjóri útgerðar er Haraldur Sturlaugsson.
Höfrungur IIIAK 250 í Akraneshöfn. Ljósmynd: Haraldur Böðvarsson h.f.
Höfrungur IIIAK 250
15. febrúar s.l. kom skuttogarinn Höfrungur III AK
250 í fyrsta sinn til heimahafnar sinnar, Akraness.
Skuttogari þessi, sem áður hét Polarborg II, er keypt-
ur notaður frá Færeyjum, en er smíðaður árið 1988
(afhentur í apríl) hjá Sterkoder Mek. Verksted A/S í
Kristiansund, Noregi, smíðanúmer 114 hjá stöðinni.
Umrædd stöð hefur smíðað tvo skuttogara fyrir ís-
lendinga, en áður hafa þrír notaðir skuttogarar verið
keyptir til landsins, smíðaðir hjá stöðinni.
Höfrungur IIIAK er búinn til vinnslu og frystingar á
afla og er f hópi skrokkstærri skipa flotans og breið-
asta skip fiskiskipaflotans (12.8 m), jafnframt því að