Tímarit lögfræðinga - 01.09.1952, Blaðsíða 11
MeiöyrOi og meiöyröamal.
131
aður, þó að hann hefði fullyrt, að amtmaður hefði alveg
að óþörfu skipað opinbera rannsókn máls og fengið fyrir
það ofanígjöf hjá yfirmanni sínum, sem þó reyndist ekki
rétt.i) Þó að amtmanni sé ekki borin á brýn viljandi ávirð-
ing, þá verður því naumast neitað, að frásögnin, einkum
um ofanígjöfina, og allur blær frásagnarinnar, var löguð
til að hnekkja virðingu amtmanns. 1 öðrum dómi frá 1895
eru þau ummæli, að aldrei hafi „lélegri persóna" veitt Bók-
menntafélaginu forstöðu en A, talin ærumeiðing, enda þótt
orð þessi út af fyrir sig varði ekki að sjálfsögðu siðferðis-
bresti. Hinsvegar voru .ummæli þess efnis, að A hafi sett
félagið gersamlega á höfuðio og að því hafi hrakað svo
undir stjórn hans, að það eigi sér trauðla viðreisnar von,
ekki talin ærumeioandi.1 2) In fyrri af greindum ummælum
horfa A tvímælalaust til virðingarhnekkis, en því verður
naumast neitað, að in síðargreindu geri það einnig eftir
því sambandi, sem þau standa í við önnur ummæli greinar
þeirrar, sem geymdi in átöldu ummæli.
Gagnrýni á gerðurn sínum verða menn almennt að þola,
enda þótt hún sé þeim óhagstæð, enda sé hún ekki klædd í
móðgandi eð^ meiðandi búning. Vitanlega getur slík gagn-
rýni falið í sér brot, er varðar við 229. eða 230. gr. hegnl.,
eins og áður er sagt, þó að 234. eða 235. gr. taki ekki til
hennar. Sá, sem birtir rit, ritgero eða kveðskap eftir sig
eða rit er birt í þýðingu hans, verður að sæta gagnrýni.
Sama er um aðra opinbera framkomu, t. d. leik, upplestur,
leikfimi, söng, gripi eða listaverk, er hann sýnir opinber-
lega o. s. frv. En jafnvel þótt ótilteknum fjölaa manna sé
ekki ætlað að njóta fræðSlu eða skemmtunar af verkum
manns, verður gagnrýni á þeim út af fyrir sig ekki æru-
meiðing, enda þótt hún sé allt annað en lofsamleg. Sögn
um atvinnuháttu manns, t. d. í búskap, kaupskap, iðnstarf-
semi o. s. frv. mundi ekki út af fyrir sig varða við lög um
ærumeiðingar, enda þótt að þeim væri fundið. Hitt er annað
1) Dómasafn V. 120.
2) Dómasaín V. 63.