Tímarit lögfræðinga - 01.01.1967, Síða 57
hvað langur aðdragandi var í raun og veru að árekstrin-
um.
Hefði til dæmis í þessu tilfelli verið kominn svona um-
ferðardómstóll, þá hefðu bilarnir ekki verið hreyfðir fyrr
en dómarinn var kominn á staðinn. Bílstjórarnir yfir-
heyrðir og sá, sem taiinn var frekar i sök, dæmdur og
ef til vill báðir, ef þannig stóð á. Menn cru yfirleitt bljúg-
ari, þegar svona vill til, lieldur en á eftir, þegar þeir hafa
harðnað og bera þá á horð fvrir menn hinar fáránlegustu
fullyrðingar. Mér er það fullkomlega ljóst, að þetta er
dýrt í framkvæmd, en það er líka dýrt að láta menn aka
eins og sumir gera nú liti á þjóðvegunum.
Ef til vill finnst hinu háa ráðuneyti hér of djúpt tekið
i árinni og þessar lillögur séu ekki framkvæmanlegar, en
sem varatillögu vil ég beina þvi til hins háa ráðuneytis,
að hækkað verði kaup löglærðra fulltrúa það mikið, að
hægt verði að fá þá til að starfa úti í héruðunum, en
þeirra starf yrði fyrst og fremst mörg þeirra smærri
opinberu mála, sem þá yrði hægt að afgreiða jafnóðum
og þau berast.
Sýslumaður Skagafjarðarsýslu og bæjarfógeti
Sauðárkróks.
Dr bréfi Jóhanns Salbergs Guðmundssonar sýslumanns
og bæjarfógeta, dags. 19. október 1965:
Orsakir fyrir drætti geta verið fleiri en ein. Svo sem
kunnugt er, hvíla á sýslumönnum og bæjarfógetum marg-
visleg störf og að ýmsu óslcyld. Er sú krafa gerð til em-
bættismannsins, að hann hafi alla þræðina í hendi sér og
geri öllum málum skil, og verður svo að vera, ef vel á
að fara. Hins vegar gera hin margvíslegu og óskyldu mál
það að verkum oft og einatt, að þau draga um of til sin
starfskrafta dómarans, þannig að Iiann fær eigi nægilegt
tóm til að sinna dómarastörfunum, einkum ef starfslið
er ófullnægjandi við embættið. Yeldur á miklu að hafa
við embættið góðan löglærðan fulltrúa. Hvað varðar þetta
Tímaril löcjfræuinga
51