Tímarit lögfræðinga - 01.01.1967, Page 71
og sakborningar eru mjög á faraldsfæti og því erfitt aÖ
ná til þeirra. En einkum er þó hér um að ræða mál, er
rækilegrar bókhaldsendurskoðunar þarf við, og þá oft
jafnframt erlendra gagna. Er augljóst, að meðferð slíkra
mála er tímafrek. Hér er þess og getandi, að dómarar, sem
um slík mál fjalla, eiga mjög erfitt um vik á þessu sviði.
Sérfræðikunnátta á bókhaldi er þörf, en hæfra endurskoð-
enda er naumast völ sem fastra starfsmanna. Endurskoð-
endur eru flestir störfum hlaðnir fyrir skjólstæðinga sína.
Aðstoð þeirra við rannsókn opinberra mála er því oft
ígripavinna og vinnubrögðin hægfara.
Framangreindar athugasemdir sýna, að úr ýmsu af því
tagi, sem aflaga fer, má bæta — sumu með breyttum
lögum, en öðru með betri framkvæmd. Aukinn kostnaður
mundi leiða af endurbótum, en óvíst er, að hann yrði
mikill, því að ýmsum sparnaði mætti jafnframl koma við.
Sá vettvangur, sem hér er fjallað um, er svo víðtækur,
að ekki verður bent á neina eina leið til úrbóta. Hins vegar
er samræmdra aðgerða þörf.
Á Norðurlöndum og víðar starfa fastar nefndir á sviði
réttarfars. Þeim ber að hafa vakandi auga á því, sem
áfátt er um rekstur dómstóla, fylgjast með nýjungum og
gera tillögur til úrbóta. A sviði refsiréttar hefur verið
starfandi nefnd hér á landi, er gegnir liku hlutverki á
sínu sviði. Raunhæfasta leiðin til þess að korna fram
endurbótum á rekstri dómsmála er sú, að föst nefnd verði
skipuð til þess að annast það hlutverk, sem hér hefur verið
vikið að.
En hvort sem ofangreind nefnd verður skipuð eða ekki,
tel ég rétt að benda á nokkur atriði, sem hér skipta máli:
1) Endurskoða þarf skipun dómstólanna og færa hana
til nútíma horfs.
2) Endurskoða þarf lög um meðferð einkamála og opin-
berra mála, svo og lög um lögmenn, samræma þau
innbyrðis og við endurbætt dómslólakerfi.
3) Athuga þarf sérstaklega innra skipulag þeirra dóm-
stóla, sem nú eru.
Tímarit lögfræðirtga
65