Tímarit lögfræðinga - 01.01.1967, Qupperneq 73
að gagnasöfnun lokinni og að embætti hans verði búið
þeim starfskröftum, að tafir þurfi ekki að verða á því.
5. Félagið telur með öllu óviðunandi að mál þurfi að
tefjast vegna dráttar á endurritum og dómsgerðum og
telur, að embætti yfirborgardónrara verði að hafa nauð-
synlega starfskrafta til að anna slíku, án dráttar.
6. Félagið vill leggja áherzlu á nauðsjm greiðrar full-
nægju dóma, enda kunna þar mikil verðmæti að vera i
húfi. í því sambandi skal á það bent, að ástæða er til að
varast það, að tekin verði upp svo skörp starfaskipting
við embætti vfirborgarfógeta, að ekki verði komizt yfir
að framlcvæma fjárnámsgerðir, þegar um þær er ijeðið.
Á það skal sérstaklega bent, að nauðsvn er á að frarn-
kvæma fjárnám vfir sumarmánuðina án röskunar af or-
lofum starfsmanna embættisins.
7. Nú mun starfað að setningu nýrra skiptalaga og
verður að gera ráð fyrir að í væntanlegri löggjöf verði
fyrir þvi séð, að búskipti og dómsúrskurðir i sambandi
við þau geti gengið greiðlega og verður það því ekki frekar
rætt hér.
8. Við gjaldþrotaskipti virðist þó nauðsyn þeirra lag-
færinga þegar í stað, að fylgt verði ákvæðum 7. gr. laga
nr. 25/l'929 um að þrotamaður verði tafarlaust leiddur
fyrir lögreglurétt til að gera grein fvrir hag sinum og
nauðsynleg bókhaldsrannsókn verði hafin og framkvæmd
án dráttar svo niðurstöður lögreglurannsóknarinnar verði
notaðar við skipti án þess að valda töfum á þeim. Virðist
sjálfsagt að nánari samvinna en nú er verði tekin upp með
sakadómi og skiptarétti á þessu sviði, i því skyni að forða
töfum á skiptum eða jafnvel tjóni kröfuhafa.
9. Um greiða málsnreðferð opinberra mála sér félagið
ekki ástæðu til að láta uppi álit, þar sem forstaða þeirra
mála er fengin embætti saksóknara og sakadómurum er
stjórna gangi mála og lögmenn hafa þar litla ihlutun.
Um meðferð mála i bæjarþingi og livernig unnt sé að
hraða afgreiðslu þeirra mála, leyfir stjórnin sér að vísa
til meðfvlgjandi athugana og tillagna, er einn félagsmanna,
Timcirit lögfrœðincja
67