Tímarit lögfræðinga - 01.01.1970, Page 71
Hæstaréttardómarar höfðu léleg laun, enda var litið á
starf þeirra sem heiðurs- og aukastarf. Árið 1670 var boð-
ið, að dómendur skyldu nefndir að jöfnu úr hópi aðals-
nianna og borgara, en sú regla var fljótlega (1690) afnum-
in. Dómaraskilyrði voru annars þau ein, að maður væri
heiðarlegur og hefði reynslu á sviði laga og réttar. Laga-
próf frá Kaupmannahafnarháskóla kom til 1736, en var
ekki gert að dómaraskilyrði fyrr en árið 1773. Frá nútíma
sjónarmiði séð, var og sá galli á stöðu dómsins framan af,
að kanslarinn var forseti hans. Síðar (1758) var skipaður
dómsforseti úr hópi dómenda, en áður var um tíma sérstak-
Ur forseti, sem jafnframt átti sæti í leyndarráði konungs.
Málsmeðferð var bæði skrifleg og munnleg í hverju máli.
Atkvæðagreiðsladómenda var leynileg, og ekki mátti birta
hvernig atkvæði féllu. Kanslarinn gekk frá dóminum og
forsendur voru engar. Hversu margir dómendur skyldu
vera, var ekki fastákveðið í fyrstu, en 1677 var boðið, 'að
þeir skyldu vera 11. Með tilskipun 7/12 1771 var þeim
fækkað í 9. Þess var áður getið, að starf hæstaréttardóm-
ara var skoðað sem heiðursstarf, enda gegndu dómendm’
öðrum störfum jafnframt, oftast sem aðalstörfum. Launa-
greiðslur voru því mjog á reiki og að jafnaði litlar eða
jafnvel engar. Til gamans má geta þess t. d., að á dögum
Friðriks IV. (1699-1730) nam kostnaður af Hæstarétti
einungis 2000 Rd. eða álíka miklu og kostnaður var af
>,det Kgl. hofsukkerbageri“, en helmingi minna en greiðsl-
ur til hesthúss konungs. Með tilskipuninni frá 1771, var
launamálum dómenda komið í betra horf að því leyti, að
þeir fengu föst laun úr konungssjóði, en launin voru þó
enn lág. Lagapróf var ekki beint formskilyrði til þess að
vera hæstaréttardómari fyrr en 1773, en hins vegar var
það ákveðið 1753, að dómaraefni skyldi greiða munnlega
atkvæði í nokkrum málum og var það á valdi dómsins að
aieta þá frammistöðu.
Er fram liðu stundir, bar minna á því, að konungur
sjálfur, leyndarráð hans eða trúnaðarmenn hefðu bein af-
Timarit lögfræðinga
69