Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Page 17
Frá 11 embættum voru send fleiri en 40 sýni samtals (46—1035), frá
12 embættum bárust færri en 40 sýni (6—17) og frá 2 embættum,
Ólafsfirði og Strandasýslu, bárust engin sýni. Svo virðist sem nokkuð
skörp skil séu milli embætta í tveimur fyrsttöldum hópum. Húsavík
er neðst í fyrsta hópnum með 46 sýni, en Húnavatnssýslur eru efstar í
öðrum hópnum með 17 sýni alls.
Ef litið er á fjölda sýna miðað við íbúafjölda (fjöldi sýna á hverja
1000 íbúa) hjá þeim 11 embættum, er flest sýni sendu, kemur í ljós, að
hlutfallstalan er á bilinu 6,7 — 17,2. Eru hlutfallstölur hæstar í Kefla-
vík og Reykjavík. Hlutfallstölur voru lægri en þessu nemur hjá öllum
12 embættum, er sendu færri en 40 sýni, ef undan er skilin Dalasýsla.
Þaðan bárust 10 sýni og hlutfallstalan var 8,7. Sé hins vegar litið á
dreifingu alkóhólmagns í sýnum frá þeim 11 embætttum, er flest sýni
sendu, kemur í ljós, að dreifingin er að verulegu leyti svipuð hjá hinum
ýmsu embættum:
A (0-0,99%c) : 24—36%
B (1,00—1,99%0) : 41—52%0
C (2,00%o og meira) : 15—31%0
Einungis í síðasta flokknum, þar sem um mjög mikla ölvun er að
ræða, má segja, að dreifingin sé verulega mismunandi milli embætta.
Vægi þessa flokks er þó tiltölulega minna en hinna, þar eð einungis tæp-
lega fjórðungur allra sýna er í þessum flokki.
Fjöldi sýna frá hinum embættunum (færri en 40 sýni) er svo lítill,
að eigi þykir rétt að ætla hundraðstölum varðandi dreifingu alkóhól-
magns marktækt gildi. Er og vafasamt, hvert gildi hlutfallstölur þær,
er áður greinir, hafa í þessum umdæmum vegna þess, hve sýni þaðan
voru fá talsins.
Á mynd 4 er sýnd töluleg dreifing allra sýna eftir alkóhólmagni. Er
sýnum skipt í sjö hópa (súlur á mynd 4) og síðan dregin hjálparlína,
er snertir topp hverrar súlu. Kemur þannig fram, að dreifing alkóhól-
magns í sýnunum er nærri því, sem vænta má við normdreifingu. Svo
sem ráða má af töflu 1, er ljóst af mynd 4, að 1000 sýni eða um það bil
47% allra sýna eru á bilinu 1,0—1,99%0. Fjöldi sýna á bilinu 1,0—1,49%0
og á bilinu 1,5—l,99%c er um það bil jafnmikill (507 og 493). Athyglis-
vert er, að einungis 246 sýni eða um 11% eru á bilinu 0—0,49%o. Á
hinn bóginn voru 38 sýni (ca. 1,4%) með meiri þéttni en 3%0.
Á mynnd 5 er sýndur sá fjöldi sýna, sem rannsökuð voru á hverjum
mánuði frá september 1972 og til ágústloka 1973. Til samanburðar er
sýndur fjöldi sýna, er rannsökuð voru á hverjum mánuði fyrstu sex
mánuði ársins 1974. Þess skal getið, að sýni eru tekin til rannsóknar einu
11