Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Page 19
Fjöldi sjrna
MYND 5.
Myndin sýnir fjölda blóðsýna úr ökumönnum og farþegum, er rannsökuð voru á
mánuði með tilliti til alkóhóls, á tímabilinu 1. 9. 1972 — 31. 8. 1973 (— . — . —) og
fyrstu 6 mánuði ársins 1974 (—x—x—).
vökvum og með nokkrum breytingum til ákvörðunar á etanóli í heila
eða öðrum líffærum (óbirtar athuganir). Fjölda annarra efna má einnig
ákvarða með gasgreiningu á súlu.
Fyrstu hugmyndir um að nota gasgreiningu á súlu við efnagreining-
ar er að rekja til Martin & Synge árið 1941. Það var þó ekki fyrr en
um og upp úr 1950, sem aðferðin var reynd að einhverju marki (Martin
& Porter 1951, James & Martin 1951, 1952). Nokkrum árum síðar
birti Wolthers (1956) athuganir sínar varðandi notagildi aðferðarinn-
ar til ákvörðunar á alkóhólum. Chundela & Janack endurbættu síðan
aðferðina árið 1960 og á grundvelli rannsókna þeirra lýstu Curry et. al.
árið 1966 þeirri aðferð við ákvörðun á alkóhóli með gasgreiningu á
súlu, sem stuðst hefur verið við í megindráttum í Rannsóknastofu í
lyfjafræði. Eftir þetta ruddi aðferðin sér víða til rúms og má nú segja,
að hún sé í flestum löndum nær alls ráðandi við ákvörðun á alkóhólum
(yfirlitsgrein: Curry 1972).
Kostir aðferðarinnar eru einkum mikið næmi (mynd 3) og mikil
hæfni til þessað greina sundur náskyld efni (mynd 1). Af mynd 3 má
13