Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Síða 25
eru á Bandaríkj aþingi og gilda una öll Bandaríkin, og hins vegar lög
hinna einstöku ríkja (State Law), sem þau setja sér og gilda eingöngu
innan viðkomandi ríkis. Þetta kerfi leiðir til þess, að í Bandaríkjunum
eru tvenns konar dómstólar: alríkisdómstólar (Federal Courts) og dóm-
stólar hvers ríkis (State Courts).
Alríkisdómararnir eru skipaðir af forseta Bandaríkjanna með sam-
þykki þingsins. Skipun þessi er til lífstíðar „on good behavior“ sem kall-
að er. En það er að þeir aðhafist ekkert það í starfi sínu eða einkalífi,
er varpað geti rýrð á mannorð þeirra eða dómaraembættið. Alríkisdóm-
urum verður ekki vikið úr embætti gegn vilja sínum, nema með dómi,
og laun þeirra má ekki skerða, meðan þeir gegna embætti. Á þetta að
tryggja sjálfstæði þessara dómara, enda leggja Bandaríkjamenn á það
höfuðáherslu, og dómstólar vestur þar eru afar sjálfstæðir og því mjög
sterkt þjóðfélagsafl og dómarastarfið nýtur þar mikillar virðingar. Árs-
laun alríkisdómara eru $ 42.500,00, nema dómara í Hæstarétti Banda-
ríkjanna, sem fá greidda $ 60.000,00 og forseti Hæstaréttar $ 62.500,00.
Þó að okkur finnist þetta há laun, er samt svo, að menn lækka yfirleitt
í launum, er þeir verða dómarar þar í landi. Þetta stafar af því, að oft-
ast verða menn ekki dómarar í Bandaríkjunum, fyi’r en þeir eru orðnir
þekktir og virtir lögmenn. Því marki ná menn venjulega ekki, fyrr en
um fimmtugsaldur, en þá geta árslaun þeirra verið 100 þús. — 200 þús.
dollarar, og einstaka sinnum enn hærri. Þetta eru dágóð laun, þegar
það er haft í huga, að bensínlíterinn kostar 12 krónur og skozka wiskí-
flaskan $ 6.00.
Alríkisdómstigin eru þrjú. Lægsta dómstigið er U.S. eða „Federal
District Courts“, sem eru 97 talsins. 1 sumum ríkjum eru fleiri en einn
dómstóll og í einstaka fleiri en þrír. Það fer eftir því, hversu fjölmenn
ríkin eru. Úrlausnum þessara dómstóla má skjóta til áfrýjunardóm-
stóla, er kallast „Circuit Courts“. Þessir dómstólar eru alls 11 og eru
nokkur ríki um hvern „Curcuit Court“, og dómarar 3—9 í hverjum
rétti. Nafnið „Circuit Courts“ á sér sögulega skýringu því að fyrrum
fóru dómarar þessir á hestbaki um lögsagnarumdæmi sín. Orðið cir-
cuit er samstofna orðinu circus, þ.e. hringur. Og dómararnir áttu að
ljúka að ríða einn hring um sitt umdæmi á hverju ári og afgreiða þau
mál, sem lögð voru fyrir þá. Þaðan stafar þetta skringilega orð.
Æðsta alríkisdómstigið er svo Hæstiréttur Bandaríkjanna „The Sup-
reme Court of the United States“. Hann er skipaður 9 dómurum, þar
af dómsforseta, sem skipaður er sem slíkur, en ekki kosinn af dóm-
endum úr sínum hópi, eins og hér á landi.
Þótt dómstigin séu þrjú, má segja, að í raun séu þau ekki nema tvö,
19