Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Side 34

Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Side 34
Frá Lögmannafélagi íslands AÐALFUNDUR 1975 Aðalfundur L.M.F.Í. var haldinn föstudaginn 11. apríl sl. að Hótel Loftleiðum. Formaður félagsins, Páll S. Pálsson hrl., setti fundinn og fól Benedikt Blöndal hrl. fundarstjórn, og kvaddi hann Benedikt Sigurðsson hdl. til fundarritara- starfa. Formaður minntist í upphafi þeirra félaga, sem látist höfðu frá síðasta aðal- fundi, þeirra Theódórs B. Líndal, Eggerts Kristjánssonar, Jóhannesar Elías- sonar, Sigurðar Grímssonar og Brynjúlfs Árnasonar, en fundarmenn risu úr sætum í virðingarskyni við hina látnu. Þá flutti formaður skýrslu stjórnar og gat þess, að haldnir hefðu verið 37 stjórnarfundir á starfsárinu. Þá rakti hann það helsta, sem gerst hafði í félags- lífinu á árinu. Að lokinni skýrslu stjórnar las gjaldkeri félagsins, Guðjón Stein- grímsson hrl., reikninga félagsins og skýrði þá. Ragnar Aðalsteinsson hrl. ræddi væntanlega útgáfu félagsins á „Handbók lögmanna" svo og um fyrirhugaða útgáfu á dómaskrá á sviði sjóréttar. Þá urðu miklar umræður um „ókeypis lögfræðiaðstoð við almenning", en formaður skýrði frá þeim athugunum, sem stjórn félagsins væri að láta gera á fyrirkomulagi þessara mála i nágrannalöndunum. Þá var samþykkt að leggja fram 200.000 kr. til Norræna lögfræðingaþingsins, sem haldið verður í Reykjavík á sumri komanda. Formaður félagsins var einróma endurkjörinn Páll S. Pálsson hrl., en með- stjórnendur voru kjörnir til tveggja ára Jón Finnsson hrl. og Brynjólfur Kjart- ansson hdl. í stað þeirra Skúla Pálssonar hrl. og Sveins Hauks Valdimars- sonar hrl., sem gengu úr stjórninni skv. félagslögum. Áfram sitja í stjórninni til næsta aðalfundar Guðjón Steingrímsson hrl. og Ragnar Aðalsteinsson hrl. Varamenn voru kjörnir Gylfi Thorlacius hdl., Jón E. Ragnarsson hrl. og Sig- urður Georgsson hdl. Endurskoðendur félagsins Árni Halldórsson hrl. og Ragnar Ólafsson hrl. voru endurkjörnir. Þá voru kjörnir í gjaldskrárnefnd Gunnar Sæmundsson hdl., Jón Ólafsson hrl. og Skúli J. Pálmason hrl., en til vara Jónas Aðalsteinsson hrl., Garðar Garðarsson hdl. og Hilmar Ingimundar- son hrl. Þorsteinn Júlíusson hrl. gerði grein fyrir gjaldskrármálum, en tillögur til breytinga á gjaldskrá félagsins lágu fyrir fundinum. Nokkrar umræður urðu um þetta mál, og sú breyting var gerð á gjaldskránni, að lögmaður skyldi jafnan taka greiðslu fyrirfram upp í lögmannsþóknun og síðan eftir því, sem verkinu miðaði áfram. 28

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.