Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Qupperneq 44

Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Qupperneq 44
Framsögumenn voru W. Weincke skrifstofustjóri, Danmörku, Gorm Bække- lund skrifstofusttjóri, Noregi, Jan Gehlin, formaður sænska rithöfundasam- bandsins, og prófessor Osmo A. Wiio, Finnlandi. Margt athyglisvert kom fram í þessum umræðum, sem ekki er rúm til að rekja hér. Á þriðja degi þingsins, sem var í rauninni aðaldagur þess, var rætt um þýðingu höfundaréttarins í þjóðfélagi nútímans („Upphovsráttens funktion i dagens samhálle"). Framsögumenn um þetta efni voru prófessor Seve Ljung- man, Svíþjóð, jur. kand. Tom Grönberg, Finnlandi, prófessor Mogens Koktved- gaard, Danmörku, og Sigurður Reynir Pétursson, hrl. Kveikjan að umræðum þingsins um þetta efni og reyndar þinghaldinu sjálfu voru ummæli norska ráðherrans Bjartmar Gjerde í ræðu á sl. ári í sambandi við fyrirhugaða endurskoðun norrænu höfundalaganna. Þar sagði hann, að „antagelig skulle man bli nödd til á ta opp til vurdering sporgs- málet, om visse grunnleggende principper i den nordiske opphavsrettslov- givningen er tilstrækkeligt i pakt med den sociale og kulturelle utvikling i váre samfunn." Þessi ummæli, sem skilin voru á þann veg, að hér hefði ráðherrann í huga afnám eða þjóðnýtingu hins einstaklingsbundna höfunda- réttar, ollu miklu fjaðrafoki í röðum höfunda og höfundasamtaka á Norður- löndum, sem ásamt kunnáttumönnum á sviði höfundaréttar snerust mjög hart gegn hugmyndum ráðherrans í þessu efni og töldu, að frekar bæri að styrkja einstaka þætti höfundaréttarins en veikja. Hins vegar hefur sænski ráðherrann Lidbom látið í Ijós svipaðar skoðanir og Gjerde. í framsöguræðu sinni rakti prófessor Seve Ljungman, einn virtasti fræði- maður á Norðurlöndum á sviði höfundaréttar, sögu þessara réttinda og benti m.a. á, að í hinum persónubundna höfundarétti væri fólgin mikil hvatning til listsköpunar, auk þess sem hann tryggði sjálfstæði höfunda gagnvart stjórn- völdum. Varaði hann mjög við afturhvarfi til „almannaréttar" á þessu sviði, a. m. k. meðan einstaklingsbundinn réttur væri á öðrum sviðum í heiðri hafður. Tom Grönberg taldi hins vegar, að minni þörf væri fyrir höfundarétt nú en áður, eftir að ríki og ýmiss konar sjóðir hefðu með allskonar styrkjum og fjárveitingum í raun yfirtekið hlutverk hans í nútíma samfélagi. í framsöguræðu minni vék ég m.a. að því, að við íslendingar hefðum lengst af búið við „almannarétt" í þessu efni. Þrátt fyrir löggjöfina frá 1905 og 1943 hefðu menn og stofnanir eigi að síður í flestum tilfellum notað verk höfund- anna án leyfis þeirra og án þess að greiða gjald fyrir. Hörð barátta höfunda- samtaka síðustu 25 árin hefði hinsvegar snúið dæminu gjörsamlega við. Væri ekki aðeins, að grundvallarreglur höfundaréttar væru nú í heiðri hafðar á islandi heldur hefðu islendingar nú sett sér nýja löggjöf um höfundarétt, sem tæki fram flestum öðrum höfundalögum að því er varðar ríka höfunda- vernd. Löggjöf þessi hefði verið einróma samþykkt á Alþingi íslendinga, og sýndi það betur en flest annað hið gjörbreytta viðhorf manna hér á landi í þessu efni. Væri öruggt, að á íslandi væri nú enginn vilji fyrir því að hverfa til almannaréttarins á nýjan leik. Af hinum ýmsu nýmælum í íslensku höfunda- lögunum vöktu ákvæði þeirra um skilyrðislausa þóknun til höfunda fyrir afnot verka við kirkjulegar athafnir langmesta athygli, og þá eigi síður hversu giftu- samleg og árekstrarlaus framkvæmd þessa ákvæðis hefði orðið. Mjög miklar umræður urðu að loknum framsöguerindunum, og voru flestir ræðumenn á einu máli um að viðhalda bæri og treysta hinn einstaklings- 38

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.