Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1976, Qupperneq 10

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1976, Qupperneq 10
landsmála um áratugaskeið. Þaðan af síður ætla ég að meta hlut hans í flokksmálum og flokksstarfi sérstaklega. Gætti þó áhrifa hans þar meira en flestra annarra full 30 ár, og er flokksforystan óumdeilanlega einn mikils- verðasti þátturinn í ævistarfi hans og persónusögu. En það segir sitt, að hann mun hafa gegnt formennsku í stjórnmálaflokki lengur en aðrir, ef Ólafur Thors er undanskilinn. Um manninn sjálfan, Hermann Jónasson, mætti hins vegar skrifa lengra mál í Tímarit lögfræðinga. Hermann var í hópi þeirra mörgu lagamanna fyrr og síðar, sem gæddir hafa verið fjölþættum gáfum og hlaðnir áhugamálum langt út fyrir sérgrein sína. Víst er auðvelt að sjá Hermann Jónasson fyrir sér sem framgjarnan mann og valdsækinn. Varla dylst, að hann var gunn- reifur í kosningabaráttu og öðrum stjórnmálasviptingum. Hann mun vafa- laust hafa fundið nautn þess að berjast þar sem harðast var barist að víga- mannasið. Þannig fer flestum, sem finna máttinn í sjálfum sér. En aldrei réðst hann á garðinn þar sem hann var lægstur. Og ekki sóttist hann eftir ófriði, — nema síður væri. 1 raun réttri var Hermann Jónasson friðsemdar- maður og hófstillingarmaður. Þótt kappsfullur þætti hann og framgjarn, var hann mjög aðgætinn, þegar mikið lá við, og óflasgjarn. Oftar mun hann hafa beitt sér sem málamiðlari en ofurkappsmaður, enda var hann það ekki í eðli sínu. Aftiur á móti var Hermann Jónasson heimslystamaður í góðri merkingu þess orðs. Hann naut bókmennta og annarra fagurra lista. Hann var málhagur og ágætlega ritfær og vandaði ræður sínar og ritgerðir. Hann lét ekki vaða á súðum, ef hann tók til máls eða drap niður penna. Hann var hagorður að gömlum sið, og hafa sumar vísur hans orðið landfleygar vegna þess að þær eru einlægar og listrænar: Ævi mín var eintóm leit eftir vilitum svani. En ég er, eins og alþjóð veit, aðeins kollubani. Ég hef orðið þess var, að Hermanni Jónassyni varð mjög gott til vina. Þar á ég ekki við samherja í stjórnmálum og fylgispaka kjósendur, þaðan af síður þá, sem flaðra upp um fyrirmenn til þess að hafa gott af þeim. Heldur á ég við gamla skólabræður oq vinnufélaqa, sem kynntust honum sem iafningja í leik og starfi. Persónuleg kynni mín af Hermanni, sem ekki urðu fyrr en á efri árum hans, og frásagnir manna, sem þekktu hann á yngri árum, hafa styrkt mig í þeirri trú, að hann hafi verið gæddur ríkri mannúð og góð- vild í garð samferðamanna sinna. Hann hafði vafalaust metnað til þess að vera fyrirmaður og skipa höfðingjasess, en hann atti ekki kappi við smælingja til þess að fullnægja metnaði sínum. Ræktunaráhugi Hermanns er Ijóst dæmi um þörf hans fyrir fagurt og frið- samlegt umhverfi. Hann var mikill sveitamaður oq náttúruunnandi. Hann var haldinn ástríðu skógræktarmannsins oq ræktaði mikla triálundi, fyrst í Foss- vogi syðra, síðar á eignariörð sinni, Kletti í Boroarfirði. Hann gerði laxveiði að íþrótt sinni og gekk að henni með samblandi af veiðimannlegri ákefð og herfræðilegri fyrirhyggju eins og byrjar í þeirri grein íþrótta. Hann var glæsimenni í sjón, fríður og fallega vaxinn, afrenndur að afli og vei búinn 52

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.