Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1976, Qupperneq 12

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1976, Qupperneq 12
gætti þessa einkum hin fyrstu árin. Ég held þó að með fyllsta rétti megi segja, að Sveinn Ingvarsson hafi leyst þessi vandasömu störf af hendi af réttsýni og samviskusemi og að fyrirkomulag þessarar verslunar hafi fremur verið breytt til frjálsari hátta af hagkvæmnisástæðum en því, að forstjórinn hafi ekki reynst vandanum vaxinn, Þótt stundum hafi andað nokkuð kalt um hann, heyrir það löngu liðinni tíð til, og víst er um það, að aldrei náði sú nepja að hans heita hjarta. Sveinn Ingvarsson var trölltryggur maður, það get ég borið um af eigin raun. Hann fylgdi Framsóknarflokknum að málum gegnum þykkt og þunnt, enda alinn upp í því umhverfi, þar sem sá hugsunarháttur sat í öndvegi. Sem dæmi um staðfestu Sveins í þessum efnum má kannski nefna það, að jafnvel þeim slynga áróðursmanni, Pétri Sigurðssyni alþm., sem var tengdasonur Sveins, tókst aldrei að snúa hug hans, og var þó jafnan mjög gott í milli þeirra mága. Þótt ég hafi um stund dvalið við minningar um starf Sveins og stefnu, er það þó af hvorugum þeim vettvangi, sem mér er hann minnisstæðastur, þó að ég kynntist því hvoru tveggja nokkuð, en rek það ekki nánar. En það var annað áhugamál, sem tengdi okkur Svein vináttuböndum, og það var bridge-íþróttin. Við græna borðið höfum við marga hildi háð, og minnist ég ótal skemmtilegra stunda nú þegar ég læt hugann reika til þeirra glöðu daga. Sveinn var í hópi bestu bridgespilara hér á landi um áratuga skeið, skarpur í hugsun og fljótur að koma auga á bestu leiðirnar, hvort heldur var til sóknar eða varnar. Þar var hann hrókur alls fagnaðar, og það var sjaldan lognmolla eða deyfð yfir því spilaborði, þar sem Sveinn sat. Úr því umhverfi minnumst við gamlir bridgemenn Sveins Ingvarssonar sem góðs, glaðs og drengilegs félaga. Sveinn var kvæntur frú Ástu Fjeldsted, hinni ágætustu konu, og áttu þau 6 börn, sem öll eru á lífi. Hann var hamingjumaður í einkalífi sínu. Síðustu árin átti hann við vanheilsu að stríða og hvíldin mun hafa verið honum kærkomin. Blessuð sé minning Sveins Ingvarssonar. Einar Ágústsson 54

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.