Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1976, Page 29

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1976, Page 29
4. Að lokum er rétt að fara fáum orðum um niðurstöður könnunar- innar: Niðurstöðurnar leiða fyrst og fremst í Ijós, að hlutfallslega eru kveðnir upp óvenju margir gjaldþrotaúrskurðir á Tslandi, sé mið tekið af öðrum Norðurlöndum. Úrskurðirnir eru óvenju margir í Reykjavík og í umdæmum í nágrenni höfuðborgarinnar, en tiltölulega mun færri í umdæmum úti á landi, einkum í sveitahéruðum. Á sama hátt lýkur óvenju mörgum gjaldþrotaskiptum þannig, að engar eignir koma fram. Þess konar lyktir skipta nema 80,59% af öllum þeim skiptalokum, er könnunin náði til. 1 þeim fáum tilvikum, er eignir koma fram, fá almennir kröfuhafar yfirleitt ekkert í sinn hlut — eða í 30 skiptum af 158. Líkur á því, að eitthvað fáist greitt upp í almenna kröfu við gjaldþrotaskipti eru tæp- lega 3%. Og virðist sú tala fara lækkandi með árunum. Það vekur nokkra athygli, að gjaldþrotaskiptum er nær aldrei lokið með gerð nauðasamnings milli þrotamanns og kröfuhafa. Og ekki er sú staðreynd síður athýglisverð, að skiptameðferð virðist oft taka langan tíma, t.d. var skiptum á 58 búum, er tekin voru til gjaldþrota- meðferðar á árunum 1965—1969, ólokið í júlí 1975, sé mark takandi á auglýsingum í Lögbirtingablaði. Skv. 37. gr. laga nr. 25/1929 er skylt að birta auglýsingu um skiptalok í blaðinu. Þá tíðkast, að bú sameignarfélaga séu tekin til gjaldþrotaskipta án þess að eigendur þeirra, sem bera ótakmarkaða ábyrgð á skuldbinding- um félaganna, séu jafnframt úrskurðaðir gjaldþrota. Og algengt er, að skiptum sé lokið án þess að innköllun til lánardrottna sé nokkru sinni gefin út. Skv. 6. gr. 1. 25/1929 á skiptaráðandi þó tafarlaust að auglýsa gjaldþrotaskipti í Lögbirtingablaði og gefa jafnframt út inn- köllun til lánardrottna. Fleiri atriði mætti tína til, en hér verður látið staðar numið. Niður- stöðurnar voru kynntar í heild á fundi, sem haldinn var þann 28. á'gúst 1975 að frumkvæði Lagastofnunar. Fundinn sátu fulltrúar frá flestum þeim aðilum, er um gjaldþrotamál fjalla, þ. á m. skiptaráðendur í Reykjavík og nágrenni. Á fundinum var skipst á skoðunum og komu í þeim umræðum fram ýmsar athyglisverðar upplýsingar og hugmynd- ir um það, sem betur mætti fara í þessum efnum. Ljóst er, að brýn þörf er á að endurskoða gjaldþrotaskiptalöggjöfina og færa hana í nútímalegra horf. Vonandi er, að könnun sú á gjald- þrotaúrskurðum á fimmtán ára tímabili, sem að framan er gerð grein fyrir, geti orðið að gagni við þá endurskoðun. 71

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.