Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1976, Qupperneq 43

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1976, Qupperneq 43
frjálsum markaði í hjáverkum. Sama er að segja um arkitekta. Prestar í þétt- býlinu tvöfalda tekjur sínar með sérstakri greiðslu fyrir prestverk samkvæmt gjaldskrá, sem samþykkt er af ráðuneytinu. Prestar í dreifbýli kenna, jafnvei fulla kennslu. Viðskiptafræðingar taka að sér bókhaldsverkefni, framtöl og þess háttar. Hjá læknum er það aðalreglan, að þeir hafi stofu með. Þannig mætti áfram telja. Almenna reglan er sú, að háskólamenntaðir ríkisstarfsmenn fá átölulaust að drýgja tekjur sínar með aukastörfum á frjálsum markaði. Frá þeirri reglu er aðeins ein veikamikil undantekning: Lögfræðingar á dómstólum, í stjórnarráði og hjá sambærilegum stofnunum verða við það að búa, að þeim er með reglugerð nr. 32/1971 bannað að afla sér tekna með málflutningi. Og ekki nóg með það. Svo langt er gengið, að gagnvart lögfræðingum virðist beitt allt annarri túlkun á 34. gr. starfsmannalaganna nr. 38/1954 en um aðra ríkisstarfsmenn. Þannig hefur ráðuneytið, síðast með úrskurði frá 21.4. 1976, bannað dómarafulltrúa að stunda fasteignasölu utan vinnutíma. Þannig virð- ast lögfræðingum, a.m.k. starfsmönnum dómsmála og stjórnarráðs, nær allar bjargir bannað fyrir utan sinn fasta launaseðil frá ríkinu. LÍ hélt því fast við þá kröfu, að lögfræðingum í ríkisþjónustu bæri að skipa að jafnaði a.m.k. einum launaflokki hærra en öðrum sambærilegum ríkisstarfs- mönnum. Þessari kröfu hafnaði Kjaradómur, svo og nær öllum öðrum kröfum félagsins, ef frá eru taldar þær launaflokkaleiðréttingar, sem áður er get- ið. Þær voru þó naumar útilátnar en við áttum von á, og náðu varla því, sem við töldum okkur eiga kost á að semja um. Það er varla of fast að orði kveðið, að niðurstaða Kjaradóms hafi valdið samninganefnd LÍ vonbrigðum. Það er naumt skammtað, það sem menn verða að lifa á næstu tvö árin. En hvað er þá til ráða? Þótt svona færi í þetta sinn, mun stjórn LÍ halda áfram að knýja á og leita úrræða, ein sér og í samfloti við BHM. Tíminn mun leiða í Ijós hvað vinnst. Nú get ég hins vegar aðeins eitt ráð gefið: Menn verða að bjarga sér sjálfir. Hefja málflutning og önnur aukastörf til að bæta upp það misrétti, sem lögfræðingar búa nú við. Það er heimild í 4. gr. rgj. nr. 32/1971 til þess að leyfa mönnum málflutning að vissu marki. Það er gert ráð fyrir því í 34. gr. starfsmannalaga, að ríkisstarfsmenn geti stundað aukastörf með samþykki yfirmanns, eftir atvikum með samþykki ráð- herra. Þetta þurfa félögin að athuga, einkum dómarafulltrúar og lögfræðingar hjá ýmsum ríkisstofnunum, sem margir eru í ágætri aðstöðu, starfs síns vegna, til að stunda málflutning, taka að sér framtalsaðstoð o.s.frv. Það er meiningarlaust og óþolandi, að 34. gr. starfsmannalaga sé skýrð á annan veg gagnvart lögfræðingum en öðrum ríkisstarfsmönnum. Og reglugerð- ina nr. 32/1971 verður að afnema, eða a.m.k. fá viðurkenningu fyrir því, að henni skuli ekki beitt. Það er með öllu óviðunandi að búa við þá reglugerð, meðan við launaákvörðun er ekkert tillit tekið til þeirrar skerðngar á afla- hæfi, sem hún veldur. Krafan er: Burt með reglugerðina eða viðbótar launa- flokk. Már Pétursson, form. ríkisstarfsmannadeildar LÍ 15. sept. 1976. 85

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.