Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1976, Side 46

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1976, Side 46
Prófessorsembætti í lagadeild var síðan auglýst laust til umsóknar. Gert er ráð fyrir, að kennslugreinar verði á sviði fjármunaréttar eða réttarfars. Umsækjendur um embættið eru Arnljótur Björnsson settur prófessor, Björn Þ. Guðmundsson borgardómari, Gísli G. ísleifsson hrl. og Steingrímur Gautur Kristjánsson héraðsdómari. Dómnefnd situr nú að störfum. í henni eru Magn- ús Þ. Torfason forseti Hæstaréttar, Benedikt Sigurjónsson hæstaréttardómari og Sigurður Líndal prófessor. í mars 1976 var lýst laus til umsóknar lektorsstaða við lagadeild. Er hér um nýja stöðu að ræða, og fyrirhuguð aðaikennslugrein lektorsins er stjórn- arfarsréttur. Umsækjendur voru þessir: Árni Kolbeinsson stjórnarráðsfulltrúi, Eiríkur Tómasson cand. juris, Gísli G. ísleifsson hrl., Guðrún Erlendsdóttir hrl., Páll Líndal borgarlögmaður, Páll Sigurðsson settur dósent og Tómas Gunn- arsson hdl. Einn umsækjenda, Eiríkur Tómasson, dró umsókn sína til baka. Páll Sigurðsson var skipaður í stöðuna frá 1. júlí 1976 að telja með bréfi menntamálaráðuneytisins dags. 23. júní 1976. Jafnframt veitti ráðuneytið hon- um launalaust leyfi frá lektorsstarfinu frá sama tíma, þar til setning hans í dósentsstöðu við lagadeild lýkur. 3. Kjör deildarforseta Á fundi lagadeildar 21. maí 1976 var prófessor Arnljótur Björnsson kosinn forseti lagadeildar til 2 ára frá 15. september 1976. Varaforseti fyrir sama tímabil var kjörinn prófessor Sigurður Líndal, fráfarandi forseti deildarinnar. 4. Lagastofnun Háskóla íslands Ársfundur Lagastofnunar Háskóla Islands var haldinn 24. febrúar 1976. Hér á eftir er skýrt frá starfsemi stofnunarinnar í sérstakri fréttagrein. Á stjórnarfundi í stofnuninni 12. apríl 1976 var samþykkt að fela prófessor Sigurði Líndal að gegna störfum forstöðumanns fyrst um sinn, þar sem Þór Vilhjálmsson hefur verið skipaður hæstaréttardómari. 5. Breyting á lagaákvæðum um prófdómara Með lögum nr. 45/1976 um breyting á lögum nr. 84/1970 um Háskóla íslands var það nýmæli tekið upp, að framvegis dæma háskólakennarar einir um úrlausnir nemenda í skriflegum prófum. Við munnleg próf, sem teljast til fullnaðarprófs, skal eftir sem áður vera einn prófdómari utan háskólans. I 29. gr. háskólalaga, eins og hún er eftir breytinguna, segir m.a., að stúdent, sem ekki hafi staðist próf og eigi vilji una mati kennara á skriflegri úrlausn, geti snúð sér til deildarforseta. Skuli þá skipaður prófdómari í hverju tilviki. Kennari getur einnig óskað skipunar prófdómara í einstöku prófi, ef hann tel- ur sérstaka ástæðu til. Ekki hefur enn reynt á þessar nýju regiur, og skal ósagt látið, hvort þær eru til bóta. Þá er óvíst í hve ríkum mæli heimild til skipunar prófdómara í einstöku prófi verður notuð. 6. Bókagjafir til lagadeildar Dr. jur. Carsten Smith, prófessor við Oslóarháskóla, er íslenskum lögfræð- ingum að góðu kunnur. Síðastiiðinn vetur ritaði hann bréf, þar sem hann tilkynnir, að lagadeild Háskóla Islands geti fengið send endurgjaldslaust tví- tök lagabóka úr háskólabókasafninu í Osló. Gerðar hafa verið ráðstafanir 88

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.