Tímarit lögfræðinga - 01.10.1976, Side 48
í leyfi frá héraðsdómaraembætti 1.6. — 15. 2 1976. Eiríkur Tómasson cand.
jur. var sérfræðingur við stofnunina 1. 6. — 31. 8.
STJÓRN:
Sveinn Sveinsson fór utan til framhaldsnáms í ágúst, og kaus stjórn Orators
Kjartan Gunnarsson stud. jur. í stjórnina í hans stað. Aðrir stjórnarmenn
voru: Þór Vilhjálmsson (forstöðumaður), Gaukur Jörundsson, Lúðvík Ingvars-
son og Sigurður Líndal. Stjórnin hélt 4 fundi 1975.
ÝMSAR RANNSÓKNIR 1975
Verkefni Eiríks Tómassonar var skýrslugerð um gjaldþrotaskipti eftir 1960.
Skilaði hann greinargerð og töflum um niðurstöður sínar. Einnig sagði hann
frá þeim á fundi á vegum lagastofnunar 28. ágúst.
Laganemarnir Berglind Ásgeirsdóttir og Þorgeir Örlygsson könnuðu efni
úr samninga- og kauparétti á vegum Páls Sigurðssonar dósents.
Páll Sigurðsson hóf könnun á afstöðu almennings til eiða og drengskapar-
heita fyrir rétti, en að þessu verkefni verður aðallega unnið 1976.
Lagastofnun fékk Eirík Tómasson til að semja greinargerð um sænsku
stjórnsýslulögin frá 1971, og var hún prentuð í Tímariti Lögfræðinga 4. hefti
1975. Greinargerðina samdi Eiríkur eftir að starfstíma hans sem sérfræðings
lauk.
Þau verkefni, sem hér hafa verið nefnd sérstaklega, voru kostuð af laga-
stofnun, en úr sjóði hennar var einnig greitt fyrir ýmis önnur minni háttar
störf tengd rannsóknum starfsmanna hennar.
ÚTGÁFA Á DOKTORSRITI MAGNÚSAR STEPHENSEN
Kolbeinn Sæmundsson lic.-és-lettres skilaði handriti af þýðingu sinni á
doktorsriti Magnúsar Stephensen dómstjóra, „Commentatio de legibus . . . .“,
á umsömdum degi, 1. júlí 1975. Þýðingin var fjölrituð og rædd á nokkrum
fundum. Þótti að því búnu sýnt, að vinna þyrfti frekari undirbúningsstörf að
útgáfunni, og er það mál ekki enn til lykta leitt.
FJÁRMÁL
Gjöld lagastofnunar 1975 voru kr. 704.674, en fjárveiting kr. 700.000.
GÖGN í VÖRSLU LAGASTOFNUNAR:
í vörslu lagastofnunar eru óbirt rit og skýrslur sem hér segir:
Þýðing Kolbeins Sæmundssonar á doktorsriti Magnúsar Stephensen.
Um svardaga að fornu og nýju — með hliðsjón af almennri þróun sönn-
unarréttar. Handrit Páls Sigurðssonar, afhent 1975.
Könnun á notkun kaupalaganna no. 39/1922 hérlendis. Skýrsla Berglindar
Ásgeirsdóttur.
Skýrsla til Lagastofnunar Háskóla islands um niðurstöður könnunar um
,,kommission“ og skyld efni. Samin af Þorgeiri Örlygssyni.
Ýmis gögn um rannsókn Eiríks Tómassonar á gjaldþrotamálum.
Þór Vilhjálmsson.
90