Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Blaðsíða 20
Má í því sambandi benda á endurskoðun barnalaga á Norðurlöndum á áttunda
áratugnum, sbr. íslensku barnalögin frá árinu 1981 og loks ný barnalög á síðasta
ári. Þá hafa barnaverndarlög sætt ítarlegri umfjöllun og verið verulega endur-
bætt á síðari árum á Norðurlöndunum, nú síðast í Noregi, en norsku barna-
verndarlögin eru frá 22. júní 1992. Þau lög voru mörg ár í undirbúningi. Nefndin
sem samdi drögin að lagafrumvarpinu sem nú er orðið að lögum um vernd barna
og ungmenna á Islandi studdist að verulegu leyti við hugmyndir og tillögur að
norsku barnaverndarlögunum en þær hafa legið fyrir frá árinu 1985. Þá má
benda á samning um réttindi barna sem samþykktur var á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna 20. nóvember 1989. Hann var lagður fram til undirritunar
26. janúar 1990 og undirritaður fyrir íslands hönd sama dag með fyrirvara um
fullgildingu. Hann öðlaðist gildi 2. september 1990 en var fullgiltur hér á landi
28. október 1992. I samningnum er kveðið á um sjálfstæðan rétt barna. Þar
kemur einnig fram að börn eigi rétt á sérstakri aðstoð og vernd sem ríkisvaldinu
beri að veita þeim. Leitast er við að skilgreina réttindi barna með hagsmuni
þeirra og þarfir að leiðarljósi. í 19. gr. samningsins segir að aðildarríkin skuli
gera allar viðeigandi ráðstafanir á sviði löggjafar, stjórnsýslu, félags- og
menntunarmála til að vernda börn gegn hvers kyns líkamlegu og andlegu
ofbeldi, meiðingu, misnotkun, vanrækslu, skeytingarleysi, illri meðferð eða
notkun, þ.á m. kynferðislegri misnotkun, meðan þau eru í umsjá annars eða
beggja foreldra, lögráðamanns eða annars sem hefur barn í sinni umsjá.
4. LÖG ER VERNDA BÖRN
I íslenskum lögum kemur fram að börn njóta verndar með ýmsum hætti. Má
þar nefna ákvæði í 21. og 22. kafla almennra hegningarlaga um sifskapar- og
kynferðisbrot svo og refsiákvæði í barnaverndarlögum. Einnig má nefna lög um
aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, lög um bann við ofbeldiskvik-
myndum, lög um félagsþjónustu sveitarfélaga, lög um leikskóla, lög um
grunnskóla, lög um heilbrigðisþjónustu og lög um málefni fatlaðra.
5. ÁSTÆÐUR FYRIR LÖGGJÖF UM BARNAVERND
Lög um vernd barna og ungmenna byggja á mannúðarsjónarmiðum. Þau
miða fyrst og fremst að því að vernda börn og unglinga eins og nafnið gefur til
kynna. Lögin hafa raunar engan annan tilgang en að koma börnum og
unglingum til hjálpar þegar þess er þörf. En vegna þess að þetta verður oft ekki
gert nema með afskiptum af foreldrum barnanna og truflunum á heimilislífi
verða þessar björgunaraðgerðir að byggja á sérstökum lagaheimildum. Ekki má
skerða stjórnarskrárvernduð réttindi manna til friðhelgi heimilis. Rétturinn til
friðhelgi nær þó ekki lengra en til þess sem leiðir af verndarákvæðum sem sett
eru gagngert til verndar börnum og ungmennum. Ein meginástæðan fyrir því að
250