Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Page 21

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Page 21
börn þurfa sérstaka vernd er sú að innan fjölskyldunnar standa þau höllum fæti. Sem börn eru þau minnimáttar gagnvart hinum fullorðnu sem hafa að jafnaði yfirburði bæði andlega og líkamlega. Börn eru háð hinum fullorðnu, sérstaklega foreldrum sínum eða öðrum sem annast þau. Börn eiga erfitt með að verjast misþyrmingum foreldra sinna, andlegum eða líkamlegum, eða annarri illri meðferð. Foreldrar sem brjóta gegn börnum sínum eru eðli málsins samkvæmt ekki færir um að gæta hagsmuna barnanna í þeim efnum. Oft er það svo að börnin sjálf vita ekki að þau þurfa að fá utanaðkomandi hjálp og ef þau vita það þá vita þau væntanlega ekki hvert þau geta leitað. Þau eru því heldur ekki fær um að fara sjálf með hagsmunagæslu fyrir sig. Þá er þess að gæta að ekki gerist það sjálfkrafa að einhver utanaðkomandi komi börnunum til hjálpar vegna þess að venjulega veit enginn um það sem enginn sér og enginn segir frá. Af þessum ástæðum standa börn stundum höllum fæti innan fjölskyldunnar og þurfa sérstaka lögbundna vernd. 6. SKYLDUR FORELDRA OG BARNAVERNDARYFIRVALDA Lög um vernd barna og ungmenna skilgreina hvenær og hvernig barnavernd- aryfirvöld koma börnum og ungmennum til hjálpar. Lagasetning á þessu sviði er vandasöm, einkum vegna þess að erfitt er að sjá fyrir allar þær aðstæður sem upp kunna að koma og eru börnum eða unglingum skaðlegar. Lagaákvæðin verða því að vera rúm því annars er hætta á að þau nái ekki til allra tilvika þar sem börn eru í hættu. Mikilvægt er þó að lögin skilgreini sem nákvæmast hvaða aðstæður í lífi barna kalla á sérstakar aðgerðir barnaverndaryfirvalda. Með því er komið í veg fyrir óvissu um réttarstöðu viðkomandi aðila og einnig er meiri von til að foreldrar gegni sínu foreldrahlutverki ef ljóst er hverjar skyldurnar eru. í eldri lögum um vernd barna og ungmenna segir að þegar barnaverndarnefnd verði þess vís að heimilishögum, uppeldisháttum, framferði foreldra, aðbúnaði eða hegðun barns sé ábótavant skuli nefndin láta málið til sín taka, á þann hátt er best þykir við eiga, eftir því sem á stendur. Allir sjá að þetta er ófullnægjandi skilgreining á skyldum foreldra og barnaverndaryfirvalda. Réttur barnsins samkvæmt þessu lagaákvæði er einnig afar óljós. LJr þessu er reynt að bæta með lögunum nr. 58/1992. í sérstökum kafla, V. kafla, sem ber heitið skyldur barnaverndaryfirvalda gagnvart einstökum börnum og ungmennum og fjöl- skyldum þeirra, er fjallað um skyldur foreldra við börn sín og skyldur barna- verndaryfirvalda gagnvart fjölskyldunni þegar foreldrarnir valda ekki foreldra- hlutverkinu án aðstoðar. í lögunum er lögð sérstök áhersla á að skilgreina sem nákvæmast hverjar skyldur foreldra og barnaverndaryfirvalda eru gagnvart börnum. Fram kemur nokkurs konar óbein skilgreining á skyldum foreldranna þannig að skilgreint er hvenær barnaverndarnefnd grípur inn í málefni fjölskyld- unnar en það gerir hún ekki á meðan foreldrar fullnægja foreldraskyldunum. Öll 251

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.