Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Síða 22
barnavernd miðar þó að fyrirbyggjandi aðgerðum. Barnaverndarnefnd þarf að
geta gripið til viðeigandi ráða áður en barnið verður fyrir skaða. Akvarðanataka
lýtur því oft að því að meta aðstæður fram í tímann. Getur það verið einn
vandasamasti þátturinn í barnaverndarstarfinu að finna hvaða úrræði eigi best
við og komi barninu að mestu gagni. Skiptir þá miklu að afla fullnægjandi
upplýsinga til þess að unnt verði að meta til hvaða ráða er réttast að grípa. Um
rannsóknarskyldur barnaverndarnefnda er fjallað í 18. og 43. gr. laganna.
Reglurnar miða að því að tryggja að unnt verði að taka réttar ákvarðanir, m.a.
varðandi það hvaða úrræði eigi best við í hverju tilfelli.
7. MÁLSMEÐFERÐARREGLUR
Málsmeðferðarreglur eiga að tryggja vönduð vinnubrögð við úrlausnir mála.
Ljóst er að það skiptir afar miklu fyrir alla aðila, foreldra, börn og barnarvernd-
aryfirvöld, að mikilvægar ákvarðanir barnaverndaryfirvalda byggist á traustum
grunni. Á hinn bóginn skiptir miklu máli að börn í brýnni neyð fái hjálp í tæka
tíð. Börn eiga erfitt með að bíða, þarfir þeirra eru þess eðlis að koma þarf til
móts við þær á þeim tíma þegar þær eru brýnar, ekki seinna því það getur orðið
of seint. Skaði sem af því hlýst gæti verið barninu óbætanlegur. Þetta er
sérstaklega brýnt að hafa í huga, bæði við lagasetningu og við úrlausnir einstakra
mála.
Málsmeðferðarreglur eru í VIII. kafla laganna um vernd barna og ungmenna.
Eru þær skýrari en reglur eldri laga og að nokkru leyti strangari. Má þar nefna að
nú þarf að kveða upp úrskurð um atriði sem áður var talið nægjanlegt að taka
ákvörðun um með bókun. Dæmi um þetta eru: 1) úrlausn á því hvaða gögn megi
afhenda, 2) hvernig háttað skuli umgengni barna, sem fara í fóstur, við
kynforeldra og loks 3) úrræði sem beitt er án samþykkis foreldra, svo sem eftirlit
með heimili eða innlögn barns á sjúkrahús eða stofnun til að tryggja öryggi þess
eða til að gerð verði viðeigandi rannsókn á barninu.
Þá má nefna nýmæli varðandi heimildir barnaverndarnefnda til að fara á
heimili til að athuga barn, heimilishagi og aðrar aðstæður barna. Samkvæmt
lögunum er aðeins heimilt að fara á einkaheimili í rannsóknarskyni ef foreldrar
eða forráðamenn samþykkja eða á grundvelli dómsúrskurðar nema um sé að
ræða neyðartilfelli. Ef ekki liggur fyrir samþykki foreldra eða forráðamanna og
ekki er um neyðartilfelli að tefla verður að leita til dómara og fá sérstaka heimild
til að fara á heimili. Dómarinn metur þá á grundvelli þeirra gagna sem fyrir eru
hvort lagaskilyrði eru fyrir hendi en þau eru 1) að líkamlegri eða andlegri heilsu
barns eða þroska geti verið hætta búin sökum vanrækslu, vanhæfni eða
framferðis foreldra eða 2) að barn eða ungmenni stefni heilsu sinni eða þroska í
hættu með hegðun sinni. Barnaverndarnefnd skal þá sýna þeim sem málið
varðar fulla nærgætni og má könnunin aldrei vera umfangsmeiri en nauðsyn
252