Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Side 28

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Side 28
háskólabókasafnsins í Lögbergi var ég engu bættari. Engin bók fannst sem beinlínis fjallaði um efnið. Mér tókst varla að finna venjulega orðabók eða lögfræðilega orðabók sem skýrði merkingu hugtaksins. Ég sendi því fyrirspurn til alþjóðlegra lögmannasamtaka sem ég er félagi í og óskaði upplýsinga um rit um efnið. Að fengnum upplýsingunum keypti ég rit erlendis sem ég mun hafa til hliðsjónar við umfjöllun mína. En þó að heimildir séu af skornum skammti er ekki þar með sagt að hvergi sé minnst á víkjandi lán. Hugtakið kemur sums staðar fyrir í lagatexta og lagafrumvörpum. Það er því full þörf á að merking hugtaksins sé ljós. Hugsanlega getur þessi umfjöllun mín skýrt merkingu þess að einhverju marki. 2. SKILGREINING a) Hugtakið Víkjandi lán er lán þar sem lánveitandi samþykkir að fá ekki greitt frá lántaka eða öðrum skuldara fyrr en annar lánveitandi hefur fengið sitt greitt. Það að gera lán víkjandi hefur aðeins þýðingu við gjaldþrot. Fyrir gjaldþrot fá báðir, forgangslánveitandi og víkjandi lánveitandi, fulla greiðslu. Það er því grundvallarmarkmið með ráðstöfuninni að hún virki við gjaldþrot. Gera má lán víkjandi á tvennan hátt: i) Með yfirlýsingu hins víkjandi lánveitanda um að það sem hann fær upp í sína kröfu sé móttekið í þágu forgangslánveitandans og verði greitt honum. ii) Með samningi milli lántaka og víkjandi lánveitanda, með eða án aðildar forgangslánveitanda, um að víkjandi lánið verði aðeins greitt eftir að forgangslánið hefur verið greitt að fullu. Framkvæmdin samkvæmt i) hér að ofan er venjulega sú að sá sem gerir sína kröfu víkjandi á þennan hátt framselur þeim sem á að njóta hags af því réttinn til að taka við greiðslum upp í kröfuna. Oft fylgir einnig atkvæðisréttur vegna kröfunnar. b) Orðanotkun í grein þessari mætti vel nota hugtökin víkjandi krafa, víkjandi kröfuhafi, forgangskröfuhafi og skuldari. Þau eru víðtækari en víkjandi lán og þau hugtök sem af þeim eru leidd. Víkjandi lán er bara eitt form gerninga sem fellur undir hugtakið víkjandi krafa. En þar sem ekki er komin ákveðin hefð á orðanotkun í þessu efni mun ég nota hugtakið víkjandi lán, forgangslán, víkjandi lánveitandi og forgangslánveitandi. Einnig má benda á að orðið forgangskröfuhafi hefur 258

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.