Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Page 29
ákveðna merkingu fyrir í íslenskum rétti. Það gæti því valdið misskilningi ef ég
notaði það hér. Ég mun þó nota orðið skuldari og lántaki jöfnum höndum.
3. TILGANGUR. HAGNÝTT GILDI
a) Lánveitandi, svo sem banki, gæti viljað víkja fyrir móðurfélagi eða
stórum hluthafa til að sá sæi sér hag í að leggja fram meira fé í rekstur
skuldarans.
b) Vegna opinberra reglna gætu ýmsir séð sér hag í að auka eigið fé sitt, eða
jafngildi eiginfjár, með útgáfu víkjandi skuldabréfa. Slíkt gerist helst á
sviði bankaviðskipta, trygginga eða verðbréfaviðskipta.
c) Við yfirtöku fyrirtækja getur þessi aðferð við fjármögnun hentað. Hún
ætti ekki að hafa áhrif á áframhaldandi lánveitingar eða aðra fyrirgreiðslu
frá þeim sem njóta forgangs.
d) Að auka lánstraust. Það að lán víki fyrir öðru bætir stöðu þess sem fær
forgang. Nýir lánveitendur eru fúsari til viðskipta ef þeir vita að á eftir
þeirra láni í tryggingaröð verður (stór) krafa, það er að segja hið víkjandi
lán.
e) Að auka lánshæfni. Vera kann að lánshæfni, eða lánsheimildir, miðist við
eitthvert margfeldi af eigin fé. Ef víkjandi lán er flokkað með eigin fé,
samanber BIS reglurnar, þá eykur víkjandi lán lánshæfni eða lánsheim-
ildir.
f) Bjargráð. Með því að gera skuld víkjandi má stundum komast hjá
gjaldþroti. Eigendur sem veitt hafa lán eða birgðasalar kynnu að fallast á
að gera kröfur sínar víkjandi til að lánveitendur gangi ekki hart fram í að
innheimta lán sem þeir hafa veitt eða kunna að veita. Þetta væri gert í
trausti þess að betri dagar væru í vændum hjá skuldaranum og frestur á
aðgerðum gæti bjargað honum.
4. SAMANBURÐUR VIÐ EIGIÐ FÉ
a) Kostir
Fjárfestir gæti auðveldlega lagt fram jafngildi víkjandi láns í formi hlutafjár.
Eftirgreind atriði mæla þó með víkjandi lánveitingu:
1. Vextir af víkjandi láni eru frádráttarbærir í rekstri en arðgreiðslur yfirleitt
ekki.
2. Skylda til greiðslu vaxta af láni er óháð því hvort hagnaður er af rekstri.
Arðgreiðsla er venjulaga háð því að hagnaður sé.
3. Sumir lífeyrissjóðir eða tryggingarfélög mega ekki fjárfesta í hlutabréf-
259