Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Síða 30

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Síða 30
um. Þau gætu hins vegar í vissum tilvikum fjárfest í víkjandi skuldabréfum eða veitt víkjandi lán. 4. Fyrirtæki getur endurgreitt lán en ekki hlutafé án þess að ströngum skilyrðum sé fullnægt. 5. Vextir af víkjandi láni ættu að vera lægri en arðgreiðsla af hlutafé þar sem minni áhætta fylgir því en framlögðu hlutafé. 6. Unnt er að fá tryggingu fyrir víkjandi láni en ekki fyrir hlutafé. 7. Hluthafar sem fyrir eru gætu orðið óánægðir með að hlutafé yrði aukið og nýir hluthafar bættust við. Það gæti m.a. breytt valdahlutföllum. Með víkjandi láni mætti auka eigið fé, eða jafngildi þess án þess að raska valdajafnvægi milli hluthafa. 8. Unnt er að gefa út víkjandi skuldabréf án þess að hluthafar hafi nokkuð um það að segja. Aukning hlutafjár gerist hins vegar ekki án samþykkis þeirra. b) Ókostir 1. Víkjandi lánveitandi hefur ekki atkvæðisrétt og því ekki áhrif á ákvarð- anatöku. 2. Víkjandi lánveitandi öðlast ekki hlutdeild í hagnaði. 3. Almennir kröfuhafar, t.d. birgðasalar, gætu orðið tregari til að halda áfram lánsviðskiptum heldur en ef um væri að ræða hlutafjáraukningu. Ofangreint ber með sér að í ýmsum tilvikum gæti verið rétt að staldra við þegar ætlunin er að auka eigið fé í fyrirtæki. Víkjandi lán gæti stundum hentað betur en bein aukning eigin fjár. 5, SAMANBURÐUR Á FORGANGSLÁNUM OG VÍKJANDI LÁNUM Forgangslán geta verið öll lán til viðkomandi, nema það sem er víkjandi. Þetta er einkennandi við útgáfu víkjandi skuldabréfa. Forgangslán geta verið öll lán ákveðins kröfuhafa eða kröfuhafahóps. Víkjandi lán gætu verið öll lán víkjandi lánveitanda til viðkomandi. Víkjandi lán gætu verið öll lán víkjandi lánveitanda til lántaka fyrir ákveðinn dag. Víkjandi lán gætu verið öll lán víkjandi lánveitanda upp að vissri heildarupp- hæð. 6. SKULDARAR OG ÁBYRGÐARMENN í grundvallaratriðum ætti það að gera kröfu víkjandi að ná til allra sem væru ábyrgir fyrir greiðslu hennar, hvort sem væri beint, í formi ábyrgðar eða á annan hátt. 260

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.