Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Side 34
Bogi Nilsson:
ENN UM AÐFINNSLUR OG ÁVÍTUR
i.
Tilefni þessa greinarkorns er grein Péturs Kr. Hafstein, hæstaréttardómara, í
3. hefti Tímarits lögfræðinga 1992 Nokkur orð um aðfinnslur og ávítur Hœsta-
réttar. Fjallar hann þar um gagnrýni mína vegna athugasemda dómstóla við
einstök atriði í rannsókn mála á lögreglustigi1 og telur hana óréttmæta og að
hluta til byggða á misskilningi, en þó málefnalega og rökstudda.
II.
„Orðið rannsókn á einungis við aðgerðir lögreglu og ákæruvalds til þess að
upplýsa mál og búa það undir saksókn“ segir í greinargerð með frumvarpi að
lögum um meðferð opinberra mála nr. 19, 1991 (oml).
Lögreglan annast rannsókn mála í meginatriðum, en undir faglegri yfirstjórn
ríkissaksóknara, sbr. 1. mgr. 27. gr. oml. Dómsmálaráðherra, sem í reynd er
æðsti handhafi framkvæmdavaldsins í þeim málaflokki sem um ræðir, fer með
yfirstjórn lögreglunnar og hann hefur jafnframt eftirlit með framkvæmd ákæru-
valds og getur krafið ríkissaksóknara skýrslna um einstök mál, sbr. 1. mgr. 26.
gr. oml.
Þá hefur löggjafinn falið umboðsmanni Alþingis að hafa eftirlit með stjórn-
sýslunni í landinu og gætir hann þess að stjórnsýslustörf fari fram í samræmi við
'Úlfljótur 4. tbl. 1991, bls. 341-356. Tímarit lögfræðinga 4. hefti 1992, bls. 3-14.
264