Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Blaðsíða 41
neyti, og auk hennar höfðu þar framsögu Ólafur W. Stefánsson skrifstofustjóri,
Vilborg Hauksdóttir deildarstjóri í Tryggingastofnun, Aðalheiður Jóhannsdótt-
ir lögfræðingur í umhverfisráðuneyti og Sigrún Kristmundsdóttir lögfræðingur
hjá Verðlagsstofnun.
Þetta glæsilega málþing var undirbúið af Dögg Pálsdóttur og Valtý Sigurðs-
syni, en Valtýr fullyrti að mest hefði hvílt á Dögg, ásamt framkvæmdastjóra
félagsins, Ragnhildi Arnljótsdóttur. Dr. Gunnar G. Schram prófessor var þeim
til aðstoðar við undirbúninginn. Þátttakendur voru 141.
Bókaðir fundarmenn voru alls 621, að málþinginu meðtöldu. Verður það að
teljast góð þátttaka, miðað við undanfarin ár, en hér munar þó um hinn opna
borgarafund, sem utanfélagsmenn sóttu einnig.
Stjórn félagsins flytur þakkir sínar öllum þeim sem tóku að sér að flytja erindi
á fundunum. Þeir stuðluðu þannig að því að efla lögfræðistörf og auka veg
fræðigreinarinnar, svo eftir var tekið.
Eins og sjá má af þessu yfirliti var bryddað upp á nýbreytni á fundum. Tilraun
var gerð með morgunverðarfundi, eins og rætt var á síðasta aðalfundi, og mæltist
hún vel fyrir. Fjölskylduferð á Þingvöll fannst félagsmönnum og góð nýung,
enda gátu þeir þá notið leiðsagnar lögsögumanns vorra tíma.
II. Jólatrésskemmtun
Jólatrésskemmtun var að venju haldin fyrir börn og barnabörn félagsmanna í
samvinnu við Lögmannafélag íslands, í Átthagasal Hótel Sögu 27. desember.
III. Nýr framkvæmdastjóri
Auglýst var laust starf framkvæmdastjóra félagsins, eins og skýrt var frá á
síðasta aðalfundi. Nokkrar umsóknir bárust, og að vandlega athuguðu máli var
ráðin Ragnhildur Arnljótsdóttir, cand. jur. vorið 1991. Hún hefur unnið mikið
og gott starf, enda ósérhlífin, dugleg og samviskusöm, og er félaginu mikill
fengur að starfskröftum hennar. Stjórnin er henni sérlega þakklát og vonar að
félagið megi njóta krafta hennar áfram.
Skrifstofa félagsins er áfram að Álftamýri 9, þar sem Lögmannafélag íslands
lætur félaginu í té aðstöðu endurgjaldslaust.
IV. Tímarit lögfræðinga
Tímaritið kemur út reglulega undir ritstjórn þeirra Friðgeirs Björnssonar og
Steingríms Gauts Kristjánssonar og þakkar stjórnin þeim vel unnin störf. Ásdís
J. Rafnar tók að sér framkvæmdastjórn tímaritsins af hálfu stjórnar, og hefur þar
unnið gott starf. Fjárhagur tímaritsins heldur áfram að vera góður. Sú nýbreytni,
sem getið var um á síðasta aðalfundi, að greiða ritlaun fyrir greinar hefur að
271