Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Síða 46

Tímarit lögfræðinga - 20.12.1992, Síða 46
vanskilaskuldum og því hafi m.a. komið til tals að hætta að senda tímaritið til þeirra sem skulda. Ásdís gat þess, að vinna væri hafin við ljósprentun eldri árganga og stefnt sé að tímabundinni ráðningu starfsmanns til að útbúa heildarregistur fyrir tímaritið. Rætt hafi verið um að hækka þóknanir fyrir stærri fræðigreinar, en ritlaun hafi hingað til verið táknræn. Orðið var gefið laust um skýrslu stjórnar, reikninga félagsins og reikninga tímaritsins, en enginn tók til máls utan fundarstjóri, sem lýsti ánægju sinni með að sjá góðan fjárhag - sérstaklega hvað varðaði Tímarit lögfræðinga. Reikningar voru síðan bornir upp og voru þeir samþykktir samhljóða. Pá var gengið til stjórnarkjörs. Undan endurkjöri báðust: Garðar Gíslason hæstaréttardómari, Sigurður H. Guðjónsson hrl., Skúli Guðmundsson skrif- stofustjóri og Valtýr Sigurðsson héraðsdómari. Tillaga var gerð um Gunnlaug Claessen, ríkislögmann, sem formann og var hann kosinn einróma. Sama var um varaformann, Dögg Pálsdóttur skrifstofu- stjóra. Samþykkt var tillaga stjórnar um aðra stjórnarmenn, en þeir eru: Ásdís J. Rafnar hdl. Helgi Jóhannsson hdl., Ingvar J. Rögnvaldsson skrifstofustjóri, Markús Sigurbjörnsson prófessor og Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari. I varastjórn voru kjörnir: Arnljótur Björnsson prófessor, Eiríkur Tómasson hrl., Hallvarður Einvarðsson ríkissaksóknari, Hrafn Bragason hæstaréttardóm- ari, Jón Steinar Gunnlaugsson hrl., Stefán M. Stefánsson prófessor og Þór Vilhjálmsson hæstaréttardómari. Endurskoðendur voru kjörnir: Guðmundur Skaftason fyrrv. hæstaréttardóm- ari og Helgi V. Jónsson hrl. Varaendurskoðendur voru kjörnir þeir: Friðgeir Björnsson dómstjóri og Sigurður Baldursson hrl. Að loknu stjórnarkjöri þakkaði nýkjörinn formaður það trúnaðartraust, sem félagsmenn sýndu nýkjörinni stjórn. Pá flutti hann fráfarandi formanni og stjórnarmönnum sérstakar þakkir fyrir vel unnin störf. Fundarstjóri þakkaði síðan fundarsókn og sleit fundi. Svo samandregið og endursagt. Ingvar J. Rögnvaldsson fundarritari 276

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.