Ægir - 01.05.1995, Page 5
1b í hlut nýkjörins formanns Sjo-
'ls íslands aö stýra samtökunr sjó-
1 lrarðvítugar kjaradeilur senr eink-
vótakaup. Þegar viötaliö sem hér
!iö var rúm vika til 25. nraí en þann
«»1I sjómanna skella á. Síöasta verk-
janúar 1994 var lokið nreð bráða-
lirrillitíðinni hafa stjórnvöld gert
hm kvótaviðskipti, svokallaða 15%
a eru sanrnrála unr að er gagnslaus.
I sanrstarfsnefnd senr skera átti úr
II kvótaviðskipti og kveða upp úr-
1 hafa hætt þátttöku í starfi nefndar-
íi að hún náði ekki utan um vanda-
't var ætlað að leysa.
Það horfði þunglega í samningamál-
um þegar Ægir settist niður með Sœvari
Gunnarssyni formanni og spurði hann
álits á stöðunni.
„Það er ekkert samningahljóö í
mönnum eins og er. Þó verð ég að fagna
þeirri yfirlýsingu Kristjáns Ragnarsson-
ar að það sé ekkert vandamál að leysa
önnur mál en verðmyndunarmálin. Við
höfum verið að hnoðast í þeim málum
við hann í marga mánuði svo þessi yfir-
lýsing kom okkur öllum verulega á
óvart. Þetta hlýtur að þýða að útgerðar-
menn gangi að því sem þegar er komið
á blað," segir Sævar.
Nú hafa sjómenn sett umrœdd verð-
myndunarmál á oddinn í þessum við-
rœðum og krefjast þess að allur fiskur
verði settur á markað og markaðsverð
greitt fyrir hann eða að viðmiðun við
markaðsverð verði tekin upp. Hver eru
helstu baráttumál önnur en þetta?
„Það eru samningar um sérveiði-
greinarnar, rækjuveiði, saltfiskvinnslu á
sjó, tvíburatroll á humri og rækju og
„hlerann" sem svo er kallaður. „Hler-
inn" er bátur sem dregur troll með öðr-
um bát en aðeins annar þeirra er veiði-
skip."
Er eitthvert þessara atriða sérstakt
átakamál?
„Það hefur veriö tekist harkalega á
um rækjuveiðarnar og skiptaprósentu
sem á að gilda á þeim. Um hin atriðin
er ekki mikill ágreiningur. Þegar slitnaði
upp út samningaviðræðum við útvegs-
menn í febrúar í vetur komu útgerðar-
menn þeirra skipa sem gera út á rækju-
samningunum til viðkomandi félaga og
gerðu samning nákvæmlega á þeim
nótum sem við lögðum fyrir Kristján
Ragnarsson og hann hafnaði. Ég lít svo
á aö það mál sé afgreitt."
Kristján hafnaði en útgerðarmenn
skrifuðu undir
Þannig að í því tilviki sýndu samtök
útgerðarmanna mun harðari afstöðu en
einstakir útgerðarmenn sem málið varð-
aði.
„Það eru alveg hreinar línur. Kristján
hafnaði algjörlega því sem útgerð Pét-
urs Jónssonar og Sunnu skrifuðu undir
daginn eftir. Ég get lýst því yfir hér að
þá vorum við sjómenn reiðubúnir til
þess að loka samningum án þess að fara
í verðmyndunarmálin. Það var mat
okkar þá að leyfa ætti samstarfsnefnd-
inni sem sett var á fót í maí í fyrra að
klára það sem fyrir henni lá. Eftir að
upp úr slitnaði kom í ljós að nefndin
var alls ekki starfi sínu vaxin. Þess vegna
tökum við þetta verðmyndunarmál inn
í samningana núna og átökin verða
harðari. Okkar höfuðkrafa er að þetta
mál verði leyst."
Settu sjómenn mikið traust á þessa
satnstarfsnefnd og þá úrskurði sem hún
átti að kveða upp?
„Við fórum inn í þá nefnd af fullum
heilindum, samtök sjómanna öll. Úr-
skurður nefndarinnar í tveimur eins
málum var með slíkum ólíkindum að
ótrúlegt er. í öðru tilvikinu var það álit
nefndarinnar að sjómenn hefðu verið
látnir taka þátt í kvótakaupum. í seinna
tilvikinu var úrskurðaö að svo hefði
ekki verið en það mál var miklu stærra
og viðameira og hefði haft mikið for-
dæmisgildi. Við sögðum allan tímann
að ef það mál næðist í gegn með réttum
úrskurði væri stór sigur unninn.
Bæbi þessi mál komu upp á Eskifirði.
Það minna tengdist útgerðarmanni í
Grindavík og þar var úrskurðaö að út-
gerðarmaburinn ætti ab borga hlut úr
keyptum veiðiheimildum. Stærra málið
snerist um Hólmaborgina og þar var úr-
skurðað þveröfugt. Þar var allt talið eðli-
legt."
Nefndin lét útgerðina beygja sig
Umrœdd nefhd var skipuð fulltrúum
sjómanna og útvegsmanna en oddamað-
ur og formaður var Svavar Ármannsson
framkvœmdastjóri Fiskveiðasjóðs. Lét
nefhdin samtök útvegsmanna beygja sig
í þessu máli?
„Mín skoðun er að einmitt það hafi
gerst. Starf nefndarinnar í heild sinni
var gífurleg vonbrigði fyrir sjómenn."
Hvað olli þessu getuleysi nefhdarinn-
ar?
„Hún hafði ekki afl til þess að taka á
málinu. Þab eru gríðarlegir fjármunir
sem velta á milli í kvótabraski, miklu
meiri fjármunir en margur hyggur sem
stendur utan við þetta. Veiðiheimildir í
ÆGIR 5