Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1995, Blaðsíða 22

Ægir - 01.05.1995, Blaðsíða 22
Virðismat Til þess að auðvelda samanburð, einkum við þau ár þegar mikil verðbólga hefur verið, er reikn- að virði aflafengs í bandarískum dollurum og í SDR. I þessum útreikningum er miðað við meðal- gengi hvers árs. Ennfremur eru reiknuð svo kölluð þorskígildi þannig aö hlutfall verðmætis þorsks í heildaraflaverðmæti er notað til að umreikna all- an aflann yfir í þorskígildi. Þróun aflaverðmætis í þessum þremur mismunandi mælieiningum er sýnd á meðfylgjandi myndum. Heildarafli ársins 1994 jafngildir 708 þúsund tonnum af þorski meðan afli ársins 1993 jafngild- ir 757 þúsund tonnum. Samsvarandi tölur fyrri ára eru 703 þúsund tonn árið 1992 og 721 þúsund tonn árið 1991. Sé miðað viö dollara er verðmæti aflans líkt og í fyrra, lægra en það hefur verið áður á þessum áratug eða einungis 704 þúsund dollar- ar. Verðmætið var 730 milljón dollarar árið 1993 en 846 milljónir árið 1992. Það nam einnig yfir 800 milljónum næstu tvö ár þar á undan. Reiknað virði aflans í SDR segir svipaða sögu um verð- mætaþróunina. Þannig var viröið mælt í SDR 491 milljón árið 1994 en 512 milljónir árið 1993. Það nam 601 milljónum árið 1992 en 633 milljónum 1991. Vinnslusvæði Sé litið til hlutfallslegs verðmætis afla til vinnslu í einstökum landshlutum verða nokkrar breytingar á milli ára. Suðurland, Reykjanes og Vestfirðir hafa bætt við sig á kostnað annarra landshluta. Þá hefur hlutfallslegt verbmæti afla sem seldur er óunninn úr landi enn minnkað. Verðmæti afla á Suðurlandi var 3,8 milljarðar árið en 13,2 milljarðar á Reykjanesi og er það hæsta verðmæti afla í einstökum landshluta. Hiutur Vesturlands er 3,2 milljarðar króna og Vestfiröir eru með 4,9 milljarða. Á Norðuriandi vestra er verðmætið 3,9 milljarbar en 8,8 milljarðar á Norb- urlandi eystra. Á Austfjörðum er svo aflaverðmæt- ib 5,4 milljarðar. Til að forðast misskilning er rétt að taka fram varðandi úrvinnslu skýrslna hjá Fiskifélagi íslands að af tæknilegum ástæbum er verðmæti bundið upphaflegum kaupanda og færist ekki með afla sem hann hugsanlega selur öðrum. Þannig á landshlutaskipting við upphafleg kaup á afla í umfjöllun um aflaverðmæti en ekki endanlegan verkunarstað. Virði aflafengs í þorskígildum (þús.tonna) Fiskifélag íslands Virði aflafengs í milljónum dollara Fiskifélag íslands Virði aflafengs í milljónum SDR Fiskifélag íslands 22 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.