Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1995, Blaðsíða 42

Ægir - 01.05.1995, Blaðsíða 42
vernig má bæta nýtingu loðnuflotans? Er hægt að hagnýta fýrri reynslu? Smári Geirsson. Þegar þetta er ritað er lobnuvertíð að ljúka og heyrst hefur að lobnuflotinn muni streyma í Síldarsmuguna í sumar og hefja eltingaleik vib hib eina sanna silfur hafsins, Íslandssíld- ina. Umræbur um nýtingu lobnuflot- ans fyrir utan hina hefbbundnu lobnuvertíb eru ávallt á dagskrá, ekki síst þegar sumar- og haustveibi á lobnu bregst ab miklu eba öllu leyti eins og gerbist sl. ár. Eblilega svíbur mörgum sárt ab sjá lobnuflotann bundinn vib bryggju mánubum sam- an og þá er spurt hvort ekki sé hægt ab finna þessuin skipum vibeigandi verkefni. í reyndinni er þetta ekki ný staða í ís- lenskum sjávarútvegi og eftir hvarf norsk-íslenska síldarstofnsins af íslands- miöum í lok sjöunda áratugarins þurfti að leita uppi ný verkefni fyrir síldarflot- ann eða gera aðrar viðeigandi ráðstafan- ir til að tryggja afkomu útgerðarfyrir- tækja. Þá var haldib til veiða á fjarlæg mib, vannýttum tegundum gefinn gaumur og flotinn endurnýjaöur að verulegu leyti í ljósi nýrra aðstæðna. í þessu greinarkorni er ætlunin að hverfa aftur til áttunda áratugarins og hyggja aö nokkrum tilraunum sem framkvæmdar voru í kjölfar síldar- hvarfsins. Til að einfalda frásögnina verður í henni fyrst og frernst tekið mib að einu nótaskipi, Berki NK 122 frá Nes- kaupstað, en saga þess á umræddu tímabili er eftirtektarverð. Börkur keyptur I byrjun áttunda áratugarins voru teknar ákvarðanir innan Síldarvinnsl- Myndin hér að ofan er af Berki NK 122. Hann var smíðaður 1968 í Trondheim í Noregi, 899 brúttótonn, mesta lengd 52,08 m, breidd 10,90 m. Aðalvél Wichman 2100 hö., sett niður 1979. unnar hf. í Neskaupstab sem höfðu í för með sér gjörbreytingu á samsetningu fiskiskipaflota fyrirtækisins. Síldarbát- arnir fjórir í eigu þess voru seldir en í þeirra stab hóf fyrirtækið skuttogaraút- gerð og festi kaup á stóru nótaskipi sem gefib var nafniö Börkur. Akvörðunin um kaupin á Berki var tekin árið 1972 og voru kaupin sérstak- lega rökstudd með tvennum hætti: í fyrsta lagi þótti stórt nótaskip henta betur en síldarbátarnir til að afla hráefn- is fyrir loðnuverksmiðju fyrirtækisins. Loðna veiddist fyrst og fremst fyrir sunnan land og þótti burbarmikið skip heppilegra til langra siglinga með full- fermi. í öbru lagi höfðu forsvarsmenn fyrirtækisins áhuga á að reyna kolmunnaveiðar í þeim tilgangi að lengja vinnslutíma loðnuverksmiðjunn- 42 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.