Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1995, Blaðsíða 45

Ægir - 01.05.1995, Blaðsíða 45
hætti um allt hafið milli Noregs og íslands. Með stærri flotvörpum eins og nú tíðkast ætti að vera mun auðveldara að ná árangri í kolmunnaveið- um en var á þeim tíma sem veiðarnar voru reyndar. Ef ástand kolmunnastofnsins er þokka- legt er fullvíst að mati Magna að fiskurinn sé í ágætlega veiðanlegu ástandi verulegan hluta árs- ins. Ef búa á skip til kolmunnaveiða þarf að leggja í mikinn kostnað og sá kostnaður hindrar að veiðarnar hefjist á ný. í reynd íhugar enginn kolmunnaveiðar sem íhlaupaverkefni, til þess er kostnaðurinn of mikill. Að vísu er það svo að veiðarfæri til úthafskarfaveiða eru svipuð þeim sem þarf til kolmunnaveiða en hængurinn er sá að þessar tegundir eru að mestu veiddar á sama árstíma. Ef til vill verða stóru flotvörpurnar not- aðar til kolmunnaveiða eftir að lokið verður við að þurrka upp úthafskarfann á Reykjaneshrygg. Þegar íslensku skipin lögðu stund á kolmunnaveiðarnar voru margir sannfærðir um að kolmunni yrði í framtíðinni notaður til manneldis í ríkum mæli en hann þykir góður matfiskur og svipar reyndar til þorsks. Þetta rættist ekki og náðist aldrei að selja kolmunna á verði sem nálgaðist þorskverð þrátt fyrir að t.d. Færeyingar reyndu talsvert til þess. Hinsvegar er kolmunni tiltölulega gott hráefni til bræðslu og gætu kolmunnaveiðar lengt starfstíma loðnu- verksmiðja verulega ef þær væru stundaðar af einhverjum krafti. Gagnleg upprifjun Þegar menn velta fyrir sér bættri nýtingu loðnuflotans getur verið gagnlegt að rifja upp fyrri tíð og draga ályktanir af þeirri reynsiu sem menn öfluðu sér. Söguleg þekking er dýrmæt og oft getur hún kveikt hugmyndir sem reynast gulls ígildi. Vissulega hefur margt breyst frá þeim tíma sem hér er geröur að umtalsefni; ýmsar fiskveiðisamþykktir hafa séb dagsins ljós og þróun veiðarfæra, skipa og tækja hefur verið hröb, en þrátt fyrir breyttar aðstæður getur söguþekkingin gagnast vel. Auðvitab vona allir að loðnustofninn verði sterkur og loðna veiðist vetur, sumar og haust. Eins eru allir vongóðir um ab Íslandssíldin gangi brátt upp að ströndum landsins eins og stundum áður og veiði á henni skapi nótaskipum nægileg verk- efni fyrir utan lobnuveiðar og veiðar á Suður- landssíld. En ef vonirnar rætast ekki er eins gott að aðrir veiðimöguleikar séu hafðir í huga, jafn- vel möguleikar sem menn hafa áður gefið gaum. □ Trondur í Gotu grunaður um 8.000 tonna ólöglega veiði Færeyska nótaskipið Trondur í Gotu er grunað um að hafa veitt ólöglega 8000 tonn af makríl í norskri fiskveiðilögsögu árið 1994. Þetta er meira en nemur öllum makrílkvóta Færeyinga í norsku lögsögunni en árið 1994 máttu þeir veiða þar 7300 tonn. Skipið var fært til hafnar í Noregi í nóvember sl. og síðar látið laust gegn tryggingu upp á sex milljónir norskra króna. Nú eru hafin réttarhöld í málinu. Skipstjórar og útgerðarmenn Þrándar hafa viöurkennt ólöglega veiði á 600 tonn- um. Hinn meinti stórtæki veiðiþjófur er engin smáfleyta heldur eitt stærsta og fuilkomnasta nótaskip heims. Trondur er 67 metra langur og getur borið rúmlega 2300 tonn. (Fiskaren - mars 1995) NÝ KYNSLÓÐ MÓT0RA M2000 FYRIR DÆLUR, FÆRIBÖND 0.FL. ACS-500 hraðastýring fyrir mótorstærðir 0,37 - 315 kW. A 11» m»ip j/r JOHAN RÖNNING HF SUNDABORG 15 104 REYKJAVÍK SÍMI: 568 4000 FAX: 568 8221 ÆGIR 45

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.