Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1995, Blaðsíða 38

Ægir - 01.05.1995, Blaðsíða 38
VEIÐAR Á FJARLÆGUM MIÐUM Islenskir sjómenn og útgerö láta ekki deigan síga þrátt fyrir niöurskurð kvóta og í samræmi við það hófust árið 1993 veiðar íslenskra skipa utan landheigi í áður óþekkt- um mæli. Sótt var á Barentshaf (s.k. Smugu) og Flæmingja- grunn auk miða við Austur-Grænland. Þessum veiðum var fram haldið á síðasta ári og jókst veiðin milli ára. Sérstak- lega var veiðin margfalt meiri í Barentshafi á síðasta ári en árið áður. Veiðar á Flæmingjagrunni hófust í júní árið 1993 en urðu mestar það ár í nóvember. I fyrra var veitt meira og minna allt árið, þ.e. veiðin dreifist á alla mánuði utan jan- úar, apríl og maí. Á Barentshafi hófust veiðar í ágúst 1993. Árið 1994 voru veiðarnar hafnar nokkru fyrr eða í maí og stóðu út árið. Á Austur-Grænlandsmiðum var einungis afl- að í október árið 1993 en á síðasta ári hófust veiðarnar í júlí og dreifðust á fleiri mánuði. Mest var veitt á Barentshafi en heildaraflamagn varð þar tæp 37 þúsund tonn að verðmæti 2,7 milljarðar. Til saman- buröar voru veidd rúm 9.700 tonn á árinu 1993 að verð- mæti um 890 milljónir króna. Aflinn var mestmegnis þorskur, þó fleiri tegundir væru veiddar. Um 6 þúsund tonn voru veidd af hlýra og lítilsháttar af ýsu, grálúöu og steinbít. Á Flæmingjagrunni veiddust um 2.400 tonn að verðmæti rúmlega 420 milljónir króna, samanborið við um 2.200 tonn að verðmæti rúmlega 380 milljóna króna árið 1993. Um 330 tonn voru veidd á Austur-Grænlands- miðum að verðmæti 57 milljónir en árið 1993 var aflinn þar innan við 200 tonn, virt á 29 milljónir. Aflinn á Fiæm- ingjagrunni var mestmegnis rækja þó um 100 tonn hans væri botnfiskur. Við Austur-Grænland var uppistaða aflans lúða og grálúða. Afli af fjarlægum miðum var að langmestu ieyti sjóunn- inn. Allur afli veiddur við Austur-Grænland var unninn um borð og sömu sögu er að segja um rækjuna af Flæm- Afli helstu fisktegunda á fjarlægum miðum og verkunarskipting þeirra Allar Frysting Söltun Sjófryst tegundir Þorskur 5.090 6.906 24.022 36.830 Ýsa 10 8 18 Karfi 17 18 Steinbítur 7 26 37 Hlýri 45 73 121 Lúða 232 232 Grálúða 5 95 99 Skrápflúra 40 40 Rækja 2.355 2.355 Annað 7 9 Samtais 5.156 6906 26.874 39.759 ingjagrunni. Af aflanum á Barentshafi fóru 13,9% til fryst- ingar í landi og er það töluverð aukning frá fyrra ári þegar 7,5% voru landfryst. Tæp 4% aflans voru söltuð, en 14,6% sjósaltað. Árið 1993 fór aðeins 2% í söltun, en um 3% afl- ans var sjósaltaður og hefur breiddin í verkun aflans þannig aukist með auknu aflamagni. Óverulegur hluti afl- ans var fluttur út óunninn. Veiðarfæranotkun er bundin svæðum í samræmi við þær veiðar sem stundaðar voru á hverjum stað. Þannig var allur afli á Barentshafi veiddur í botnvörpu, notuð var lína við Austur-Grænland en rækjuvarpa á Flæmingjagrunni. Þó voru þau rúmlega 100 tonn sem aflað var af botnfiski á Flæmingjagrunni veidd í botnvörpu. Alls stunduðu 73 skip úthafsveiðar, þar af 63 á Barents- hafi. Af síðar nefndum skipum voru 26 ísfisktogarar og 36 vinnsluskip. Vinnsluskip veiddu þar 24.500 tonn að verð- mæti 1.865,4 milljónir króna. En afli vinnsluskipanna var 7.926 tonn í Barentshafi aö verðmæti 728 milljónir króna árið 1993. Allur afli af Flæmingjagrunni og Austur-Grænlandsmiö- um var sjóunninn eins og áður kom fram. Af Barentshafi var landað hérlendis 29.481 tonnum af unnum afla eða um 80% af heildaraflanum og er þá hvort tveggja talið, sjósaltað og sjófryst. Sambærilegar tölur fyrir árið 1993 eru 8.236 tonn af unnum afla eða um 85% af heildaraflanum. Verðmæti þessa afla var rúmlega 2.180 miiljónir eða um 84% heildarverðmætis þess afla sem veiddur var á Barentshafi. Árið áöur var aflaverðmætið 750 milljónir sem er um 88% heildarverömætis afla úr Barents- hafi það ár. Þess ber að geta að nokkrir svo kallaðra ísfisk- togara unnu hluta afla síns um borð. Af óunnum afla sem færður var til hafnar innanlands voru 5.614 tonn verkuð í heimahöfn skips en alls var slíkur afli 6.727 tonn. Erlendis var landað 816 tonnum óunnum. Ráðstöfun afla af fjarlægum miðum Landað til vinnslu Landað Landað innanlands unnið erlendis Þorskur 6,658 29,416 810 Ýsa 10 8 * Karfi * 17 ★ Steinbítur _T~ 26 5 Hlýri 47 73 - Lúða - 232 - Grálúða 5 95 * Skrápflúra - 40 - Rækja - 2,355 - Annað 2 5 - Samtals 6,729 32268 816 38 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.