Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1995, Blaðsíða 11

Ægir - 01.05.1995, Blaðsíða 11
Ráðstefna um kvótakerfið Fiskifélag íslands heldur ráö- stefnu um „Kvótakerfi í sjávarút- vegi, fiskveiðistjórnun, reynsla og framtíð". Fyrirlesarar verða Ragnar Ámason prófessor sem fjallar um fiskveiði- stjórnunarkerfi í öðrum löndum, Snjólfur Ólafsson lektor sem fjallar um hagkvæmni íslenskrar fiskveiði- stjórnunar, Agnar Helgason sem fjallar um eignarhald í sjávarútvegi í kvótakerfi (Agnar er að skrifa dokt- orsritgerð í London um þetta efni), Guðjón A. Kristjánsson formaður FFSÍ fjallar um útkast á fiski og loks verður fjallað um aðra valkosti í fisk- veiðistjórnun. Ráðstefnan er öllum opin og hefst kl. 13:00 31. maí á Hótel Sögu. íslenskir fiskar aftur á mynd ískort hf. hefur gefib út veggspjald með myndum af íslenskum fiskum. Hluti þess sést á myndinni hér að ofan. Á spjaldinu eru litmyndir af 46 teg- undum fiska og skelfiska sem veiddir eru til nytja hér við land. Teikningar gerði Guðjón Ingi Hauksson. Veggspjaldið er gefið út í tveimur stærðum og fæst hjá útgefanda í Ármúla 22, en síminn þar er 588 2000. ÆGIR 1 1

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.