Ægir - 01.05.1995, Síða 8
Davíð Oddsson hafði þá
aldrei rætt við neinn for-
ystumanna sjómanna um
þessi mál. Ef þetta brýtur
ekki trúnað milli manna þá
veit ég ekki hvað gerir það.
Ef æðsti stjórnmálamaður
landsins leyfir sér að haga
sé meö þessum hætti get-
um við alls ekki treyst hon-
um. Eg bind engar vonir
við aögerðir ríkisstjórnar-
innar og treysti Davíð
Oddssyni ekki."
Hver er Baldur og hver er
Konni?
Grétar Mar Jónsson skip-
stjóri sagði í viðtali í síðasta
tbl. Ægis að Þorsteinn Páls-
son og Kristján Ragnarsson
vœru eins og Baldur og
Konni. Er hann þá með
Davíð á hinu hnénu?
„Eg get tekið undir orð
Grétars en vil ekki, að svo
komnu máli, blanda for-
sætisráðherra inn í þá lík-
ingu. Þorsteinn og Kristján
hafa verið nákvæmlega eins
og Baldur og Konni í við-
ræðunum við Norðmenn."
Alþingi sægreifanna
Ef þú lítur yfir nýkjörið
Alþingi, hverja sérðu sem
talsmenn sjómanna þar
inni?
„Þú setur mig svolítið á
gat. Guðmundur Hallvarðs-
son hefur verið talsmaður
sjómanna og á traust mitt.
Mér sýnist hinsvegar marg-
ir þingmenn og ráðherrar
hafa góð tengsl inn í út-
gerðaraðalinn. Ég nefni
sem dæmi Halldór Ásgríms-
son sem er tengdur útgerð
á Hornafirði. Ingibjörg
Pálmadóttir er gift Haraldi
Sturlaugssyni á Akranesi.
Þetta eru aðeins tvö dæmi
um fulltrúa sægreifanna á
þingi. Vilhjálmur Egilsson
Hver er maðurinn?
Sævar Gunnarsson formaöur Sjómannasambands íslands
er alinn upp við sjósókn viö fótskör hárra fjalla noröur í
Ólafsfirði þar sem hann fæddist 3. ágúst 1943. Hann er
næstelstur fimrn sona hjónanna Gunnars Björnssonar og
Birnu Björnsdóttur. Sævar kynntist snemma baráttu fyrir
bættum kjörurn sjómanna og umræðu um réttindamál þeirra
því faðir hans var um árabil formaður sjómannafélagsins í
Ólafsfiröi.
Sævar fór ungur til sjós og var 15 ára gamall háseti á Einari
Þveræing sem Magnús Gamalíelsson á Ólafsfiröi gerði út. Síð-
ar lá leiö hans um ýmsa þekkta báta á Ólafsfiröi s.s. Ólaf bekk
og Sæþór. Sævar fékkst við bátasjómennsku frá Ólafsfirði til
1965 en þá fluttist hann suöur á land og var á Héðni frá
Húsavík og ísleifi frá Þorlákshöfn en 1974 flutti hann til
Grindavíkur þar sem hann hefur verið búsettur síöan.
Sævar hefur 1.000 hestafla vélstjórnarréttindi frá 1965,
svokallað Fiskifélagspróf. Hann hefur lengst af veriö véistjóri
á þeirn bátum sem hann hefur róið á. í Grindavík var Sævar á
ýmsum bátum s.s. Hópsnesi og Hafbergi en samfleytt í átta
ár nteö Guðjóni Einarssyni skipstjóra á Geirfugli, Skarfi og
Gauk sem allir eru gerðir út af Fiskanesi í Grindavík. Sævar
varð formaður Sjómanna- og vélstjóraféiags Grindavíkur árið
1983 og 1987 hengdi hann upp sinn sjóstakk og skrúflykil,
hætti sjómennsku og hefur starfaö ötullega að félagsmálum
sjómanna síðan. Hann var kosinn varaformaöur Sjómanna-
sambandsins 1992 og hefur setið í forystusveit sambandsins,
framkvæmdastjórn og sambandsstjórn í 10 ár.
Sævar er giftur Rannveigu Hallgrímsdóttur og þau eiga fjög-
ur börn; Gunnar, Rósmund, Guöjón og Hólmfríöi. Sonunum
kippir nokkuð í kyniö því þeir hafa allir fengist eitthvað við
sjómennsku og Rósmundur er háseti Hrafni Sveinbjarnarsyni
GK. Allir bræður Sævars hafa stundaö sjómennsku rneira og
minna, sumir áratugum saman og eru enn til sjós.
Sævar sagðist í samtali við Ægi vera óhræddur við að láta
dænta sig af verkum sínum og þessvegna mætti líta á verkfall
sjómanna sem prófstein á forystu sjómannasamtakanna. En
það væri þó háð því aö forystan fengi aö ljúka ntálinu án af-
skipta annarra.
og Stefán Guðmundsson
böröust harkalega gegn
skoðunum sjómanna á
þingi sl. vetur.
Þannig sýnist mér sjó-
menn ekki eiga mikinn
skilning meðal alþingis-
manna nema kannski á sjó-
mannadaginn þegar við
erum hetjur með salt í hár-
inu."
Finnst þér vera meiri
harka og óbilgirni í sam-
skiptum samtaka sjómanna
og útgerðannanna í dag en
áður var?
„Ég minnist þess fyrir
um 10 árum að útgerðar-
menn í Grindavík hikuðu
ekki við að koma niður á
bryggju um miðjar nætur
til að gera upp leigubíla fyr-
ir áhöfn úr Reykjavík. Þá
var skortur á sjómönnum
og varð að taka það sem
bauðst. í dag er þessu öfugt
farið. Það er offramboð á
fólki og atvinnuleysi og
þetta vopn komið í hendur
útgerðarmanna. Þetta sést
best í átökum um fiskverð-
ið þar sem sagt er við sjó-
menn: Ég ætla að borga
þessar x krónur fyrir aflann
og ef ykkur líkar það ekki
getið þið leitað ykkur að
annarri vinnu. Það er nóg
fólk.
Hitt er svo annað mál að
samningar sjómanna og út-
gerðarmanna eru í mörgum
tilvikum mjög loðnir og
þaö er löngu tímabært að
aðilar setjist niður og komi
sér saman um túlkun ein-
stakra atriða. Þannig mætti
í mörgum tilvikum komast
hjá deilum. Mér finnst
þetta oft leiöinlegar deilur
um smáatriði og mér sýnist
samningar annarra oft vera
skýrari og auðskildari og
hreinn barnaleikur miðað
við okkar samninga.
8 ÆGIR