Ægir - 01.05.1995, Qupperneq 9
Boðun verkfallsins í fyrra velktist fyrir fé-
lagsdómi og ekkert gerðist á meðan. Það
fékkst ekkert rætt meðan verðmyndun var
óútkljáð. Ég óttast að það fari á sama veg
núna. Við boðuðum verkfall núna með 21
dags fyrirvara og því hefði verið tími til þess
að vinna að öðrum málum ef vilji hefði ver-
ið fyrir hendi."
85% útgerðarinnar í eigu
fiskvinnslunnar
Nú liafa kannanir sýnt að algengt er að
um helmingi muni á verði á markaði og í
fóstum viðskiptum. Vitið þið hve margir sjó-
menn búa við fóst viðskipti og hver margir
við markaðsverð?
„Langflestir eru í beinum viðskiptum og
verða að sætta sig við einhliða ákveðiö verð
kaupandans. Um það 30% af bolfiski er selt
á markaði en þar fyrir utan er öll rækja og
allur bræðslufiskur. Af heildarveiði fara því
ekki nema 8-10% gegnum markaði.
80-85% af allri útgerð í landinu eru í
eigu fiskvinnslunnar svo það eru hæg
heimatökin. Þab hefur verið tekist fast á um
þessi mál á Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Akureyri
og Grindavík. Þau átök hafa endað með
fullum ósigri sjómanna. í framhaldinu
fengum við Samtök fiskvinnslu án útgerðar
til þess að gera tilboð í aflann á nokkrum
stöðum þar sem föst viðskipti eru tíðkuö.
Það mál er fyrir félagsdómi. Það hefur dreg-
ist of lengi og óhóflega hjá okkar lögmönn-
un en ég hef krafist niðurstöðu í þessum
mánuði."
Eru hagsmunir sjómanna ólíkir eftir því
hvar á landinu þeir búa?
„Nei það eru minni skil milli sjómanna í
þessum efnum en í mörgum öðrum starfs-
greinum. Ég þekki vel til á landsbyggðinni
þar sem ég er alinn upp á Ólafsfirði og bú-
settur í Grindavík. Hagsmunir sjómanna
eru líkir hvar sem er á landinu. Það eru
mun meiri skil eftir útgerðarflokkum, sér-
staklega hefur bátaflotinn átt undir högg að
sækja undanfarin ár."
Erum að berjast fyrir
fiskvinnslufólk líka
Það hefur talsvert verið bent á að fjöldi
fiskvinnslufólks missi vinnuna við verkfall
sjómanna og sumarvinna skólafólks sé í upp-
námi. Hvað viltu segja um þetta?
„Kristján Ragnarsson sagði um daginn að
krafa okkar um allan fisk á markað væri bein aðför ab því ágæta fiskverkunar-
fólki sem þá var nýbúið ab gera samninga.
Ég spyr á móti: Hvað er abför að starfsöryggi fiskverkafólks ef það er ekki
sala á veiðiheimildum þvert og endilangt um landið?
Ég tel að með baráttu sinni séu sjómenn að vinna fyrir hagsmuni fisk-
vinnslufólks líka."
Síðasti samningur sem útvegsmenn og sjómenn gerður var felldur í haust, fyrst
afminni sjómannafélögum og síðan afstjórn LÍÚ. Kom það ykkur á óvart?
„Já, það gerði það. Mér fannst stjórn LÍÚ sýna vantraust á sinn formann
með því fella hann. Það gildir öðru um forystu sjómanna og er ekkert vantraust
á hana þar sem 40 félög þurfa að taka afstöðu og eðlilega sýndist sitt hverjum.
Þar sem sjómenn tóku afstöðu í allsherjaratkvæðagreiðslu sögðu 80% sjómanna
já, einkum vegna hagstæðra ákvæða um hafnarfrí á frystitogurum."
Nú kusu FFSÍ og vélstjórar að standa utan við þann samning sem á endanum
var felldur. Hvemig er samstöðu sjómanna háttað íþessum aðgerðum?
ÚTGERÐARMENN
SKIPSTJÓRAR
Háþrýstiþvottur med 800 - 1000 bar
þrýstingi tryggir árangur iríd málun!
Sléttur botn sparar olíu og peninga.
800 bar þrýstingur hreinsar alla gamla botnmálningu í burtu.
Hreinsum alla lausa málningu og ryð af skipsskrokkum og millidekkjum.
STUR
HAMRABORG 7, 200 KÚPAV0GI SÍMI: 564 2295,
BÍLASÍMI: 985 - 32882 BÍLASÍMI EFTIR 3 JÚNÍ:853 2882
ÆGIR 9