Ægir - 01.05.1995, Blaðsíða 13
APRÍL
■H Ingimundur hf. á Siglufirði
■i semur við norska skipa-
smíðastöð, Slippen Mek. Verksted
í Sandnessjöen, um smíði á nýju
rækjuskipi í stað Helgu RE og
Helgu II RE sem verða úreltar.
PPI Stöðfirbingar og Breiðdæl-
iiil ingar slíta samstarfi sínu
um rekstur fyrirtækisins Gunn-
arstinds hf. Breiðdælingar hyggja
á samstarf við Djúpavogsbúa en
Stöðfirðingar ætla að standa einir
í sínum atvinnurekstri. Samstarf
milli sveitarfélaganna um þennan
rekstur hafði staðið í þrjú og hálft
ár.
PPJ Viðræður hefjast í Ósló um
■■■ veiðar Islendinga í Barents-
hafi og á Svalbarðasvæðinu. Tals-
menn íslenskra útgerðarmanna
hafa lýst því yfir að þeir telji eðli-
legt að íslendingar fái að minnsta
kosti 60 þúsund tonna kvóta í
Barentshafi.
PPV Slitnar upp úr viðræðunum
■PÍfl í Ósló eftir að Norðmenn
bjóða 10 þúsund tonna kvóta í
Barentshafi sem íslendingar telja
algjörlega óásættanlegt.
PPI Nokkur íslensk skip halda
ififl til veiða í Síldarsmugunni
fyrir austan land þar sem norsk-ís-
lenski síldarstofninn gerir nú vart
við sig. Slitrótt veiði er á svæbinu
en nokkrir bátar sigla heim með
dræman afla og hyggjast fara ab
tilmælum stjórnvalda um að
fresta veiðum um sinn.
PPI Viðræður íslendinga við
■>■ Norðmenn um nýtingu
norsk-íslenska síldarstofnsins
halda áfram þrátt fyrir ósætti á
öðrum vígstöbvum. Norskir síld-
arbátar verða uppvísir að því að
veiöa í Síldarsmugunni þrátt fyrir
að norsk stjórnvöld hafi kallað
veiðar íslendingar þar óhæfu.
PM Grandi hf. greiðir hlut-
■PP höfum 8% arö vegna 1993,
alls 87,6 milljónir, en hagnaður
ársins varð 153 milljónir.
SJÁVARSÍÐAN
MAÐUR MÁNAÐARINS
Maður mánaðarins er Ármann Ármannsson útgerðarmaður og framkvæmda-
stjóri Ingimundar hf. Nýlega var gengið frá samningum Ingimundar við Slippen
Mek. Verksted í Sandnessjöen í Noregi um smíði á nýju og glæsilegu frystiskipi sem
verður með stærstu rækjutogurum íslendinga. Skipið verður sérhæft til rækjuveiða
og mun frysta allan afla um borð. Karfalína verður um borð í skipinu og Ingimund-
ur hf. ræður yfir 2.600 þ.í.g.tonna kvóta svo skipinu bjóðast ýmsir möguleikar. í
stað nýja skipsins úreldir Ingimundur Helgu RE 49 og Helgu II RE 373 sem
fyrirtækið hefur gert út til þessa. Nýja skipið, sem
kemur til landsins í júní 1996, verður 4000 rúm-
metrar, 61 metri á lengd og 13 metrar á breidd.
Vélarstærð 4500 hestöfl. Skipið er 1900 brl. en það
er hannað hjá Skipsteknisk AS í Álasundi.
Ármann vildi ekki gefa upp kaupverð skipsins en
sagði að það væri dýrt. „Viö höfum selt mikiö af
eignum til þess að mæta þessu. Það var allt selt fyrir
norðan svo það má segja aö við séum að færa okkur
úr landvinnslu yfir í útgerð eingöngu. Eins og
ástandið er nú eru aðstæður góðar í rækjuveiðum
svo þetta lítur mjög vel út," sagði Ármann í samtali
við Ægi.
Ármann Ármannsson er fæddur í Reykjavík 2. mars 1949, sonur hjónanna
Ármanns Friðrikssonar skipstjóra og útgerðarmanns og Ragnhildar Eyjólfsdóttur
sem bæði voru frá Vestmannaeyjum. Ármann fór 13 ára til sjós með föður sínum
á Helgu RE og aflaði sér skipstjórnarréttinda og var skipstjóri á Helgu II í 12 ár en
kom í land fyrir 14 árum. Ármann er kvæntur Sjöfn Haraldsdóttur myndlistarkonu.
ORÐ í HITA LEIKSINS
„Einar Oddur er að vísu búinn að blessa yfir stjórnarsamstarfið, en við eigum eft-
ir að sjá ritningartextann sem fyrirbænin byggist á." Forystugrein í BB á ísafirði
bergmálar áhyggjur vestfirskra sjómanna.
„Norðmennirnir halda að með nýrri ríkisstjórn hér á landi hafi orðið stefnubreyt-
ing en ég hef trú á að Haildór Ásgrímsson verði fastur á okkar hagsmunum."
Jóhann A. Jónsson útgerðarmaður á Þórshöfn í samtali við Dag á Akureyri.
„Tíminn vinnur afdráttarlaust með okkur varðandi kvóta í Barentshafi." Friðrik
Guðmundsson framkvæmdastjóri Tanga á Vopnafirði í samtali við Dag.
„En á undanförnum mánuðum talar maður við fúla Færeyinga sem fá ekki
Poly-Ice toghlera á grænlenska rækjutogara." Jósafat Hinriksson iðnrekandi í
fréttabréfi J. Hinrikssonar hf., Poly-Ice.
„Aður fyrr þótti manni gaman að fást við útgerð og var ávallt að reyna að gera sitt
besta en núna fáum við aldrei frið fyrir skriffinnsku og hnýsni hins opinbera og
það er ákaflega lýjandi til lengdar." Guðrún Lárusdóttir útgerðarmaður í Hafnar-
firði segir Fiskifréttum frá samstarfinu við Fiskistofu.
„Því hljótum við að gera þá kröfu til ríkisvaldsins að þessar 13-14 opinbem stofn-
anir sem hafa eftirlit með hverju sjávarútvegsfyrirtæki, taki upp hagræðingu og
samræmingu svo lækka megi þennan kostnað." Sigurbjörn Svavarsson útgerðar-
stjóri Granda lýsir vaxandi eftirlitsbákni fyrir Fiskifréttum.
ÆGIR 13