Ægir - 01.05.1995, Page 18
AFLI
Heildarafli hefur dregist nokkuð saman milli ára
enda var árið 1993 annað mesta aflaár íslandssög-
unnar sé miðað við heildaraflamagn einvörðungu.
Ástæður samdráttarins eru einkum þær að
loðnuafli var um 200 þúsund tonnum minni árið
1994 en árið áður auk þessa sem þorskafli er mikið
skertur. Á móti vegur að úthafskarfaafli meira en
tvöfaldaðist milli ára auk þess sem ýsuafli var með
ágætum. Minni breytingar uröu á aflamagni ann-
arra tegunda.
Heildaraflinn á árinu 1994 að undanskildum
veiðum á fjarlægum miðum var um 1.510 þúsund
tonn. Aflinn var hins vegar 1.700 þúsund tonn
árið 1993. Árið 1992 var heildaraflinn 1.670 þús-
und tonn.
Gerð er grein fyrir veiðum á fjarlægum miðum
sérstaklega í kafla annars staðar í blaðinu og er sú
veiði ekki meötalin í því sem hér greinir.
Meðfylgjandi mynd sýnir heildarafla íslendinga
á tímabilinu 1969-1994. Mestur afli fékkst árið
1988 en hann varð yfir 1.750 lestir á því ári. Næst
mestur varð svo aflinn árið 1993 eins og áður
greinir. Ef litið er sérstaklega á síðustu 15 ár sést að
aflinn hefur verið nokkuð stöðugur í u.þ.b. einni
og hálfri milljón lesta. Þær undantekningar sem
sjá má á myndinni skýrast af því aðallega að
loðnuveiðar voru að mestu bannaðar á árunum
1982 og 1983 svo og árið 1991.
Verðmæti
Tegundaskipting heildaraflans síðustu 2 ár svo
og skipting aflaverðmætis er sýnd á meðfylgjandi
myndum. Svo sem að framan greinir hefur loðnu-
afli langsamlegast mestu áhrifin á heildaraflamagn
ár hvert enda er magn hans yfir helmingur alls afl-
ans í góðu ári. Hlutdeild loðnunnar í verðmæti
heildaraflans er þó einungis um 6% á síðasta ári og
7% áriö 1993. Á sama hátt má benda á að þrátt fyr-
ir að krabba- og skeldýr séu einungis 4-6% af heild-
arafla síðustu tvö ár er verðmæti þessa afla 16% af
verðmæti alls afla árið 1994 en 13% árið 1993.
í krónum talið nam aflaverðmætið 49,1 millj-
arði króna árið 1994 en var 49,5 milljarðar árið á
undan. Þannig hefur lítil breyting oröiö á aflaverð-
mætinu milli ára sé miðað við krónur. Árið 1992
var verðmæti aflans 48,4 milljarðar en árið 1991
var verðmæti heildaraflans töluvert hærra eða um
51,3 milljarðar.
Heildarafli 1969-1994
Þúsundirtonna
Fiskifélag íslands
Tegundaskipting heildarafla
£. Annað 10% Krabbi og skel 4% Loðna 55% / Annað 14% Krabbi og skel 6%
Grálúða 2% Karfi 7% Ufsi 4% Ysa 3% Grálúða 2% Karfi 9% Ufsi 4%
1993 Þorskur 15% 1994 Þorskur 12%
Fiskifélag íslands
18 ÆGIR