Ægir - 01.11.1995, Side 32
Tæknideild Fiskifélags íslands.
Þann 5. nóvember sl. kom skuttog-
arinn Engey RE 1 (1360) lír breytingu
frá Póllandi. Breytingarnar fóru fram
hjá skipasmíðastöðinni Nauta í Gdynia,
Póllandi, en hönnun þeirra annaðist
Toni sf. Akureyri í samvinnu við Granda
hf., tœknideild. Vinnslubúnaður á milli-
þilfari var hannaður af Teiknistofu
Karls G. Þórleifssonar á Akureyri.
Meginbreytingar eru þœr að skipinu er
breytt úr ísfisktogara í heilfrystitogara,
togdekk hœkkað, bœtt við fiskilúgu,
stœkkuð móttaka, settur nýr vindu-
búnaður í skipið og breytingar gerðar í
íbúðarými. Frystikerfið er með ammoni-
ak sem kœlimiðil og er flokkað. Þetta er
þriðja fiskiskiþið hérlendis með ammon-
iak sem kœlimiðil.
Skipið er í eigu Granda hf. í Reykja-
vík. Skipstjóri er Guðmundur Björnsson
og yfirvélstjóri er Sveinn Ásgeir Sigurðs-
son. Framkvœmdastjóri útgerðar er
Brynjólfur Bjarnason.
Ferill skips
Skipið, sem hefur frá upphafi borið sama nafn, er smíðað í Gdynia i
Póllandi árið 1974 hjá Stocznia im Komuny Paryskiej, smíðanúmer (gerð)
B 425/11/1, og er hið fyrsta í röö fimm systurskipa, sem þar voru smíðuð
og öll bættust við flotann árið 1974. Hin fjögur eru: Hrönn RE 10 (1365),
nú Viðey RE 6; Guðsteinn GK 140 (1369), nú Akureyrin EA 110; Ver AK
200 (1376), nú Víðir EA 910; og Baldur EA 124 (1383), nú Skutull ÍS 180.
Engey RE var upphaflega í eigu Hraðfrystistöðvarinnar í Reykjavík hf.,
en frá janúar 1991 er skipið í eigu Granda hf. í Reykjavík, er fyrrnefnda
fyrirtækið sameinaðist Granda hf.
Helstu breytingar sem áður hafa verib geröar á skipinu eru þær að árið
1982 var skipið lengt um 8.4 m og lest skipsins kassavædd og breytingar
gerðar á fyrirkomulagi á togþilfari. Ljósmynd tekin 1974.
32 ÆGIR