Ægir - 01.11.1995, Side 47
Skipting aflans og verðmætis upp úr sjó árið 1994
Tilmanneldis 315.893 tonn 21.992 millj. kr.*
Þar af:
Síld, makríll og spærlingur 187.885 tonn 3.836 millj. kr.
Þorskfiskar 68.745 tonn 7.211 millj. kr.
Flatfiskur 42.010 tonn 6.621 millj. kr.
Áll 1.138 tonn 631 millj. kr.
Humar og rækja 8.815 tonn 2.545 millj. kr.
Aðrar fisktegundir 7.299 tonn 1.147 millj. kr.
Til bræöslu 1.407.606 tonn 8.552 millj. kr.
Samtals 1.723.498 tonn 30.544 millj. kr.
Verömæti er gert upp á genginu 1 DKK = 11,20 IKK
Hrun þorskstofnsins í Eystrasalti
Ástæðan fyrir þessum samdrætti er
fyrst og fremst hrun þorskstofnsins á
öllum miðum danskra sjómanna. Verst
hefur ástandið verið í Eystrasalti en
þorskmiðin þar hafa löngum verið þau
gjöfulustu sem dönsk skip hafa haft
aðgang að. Þar náðu þorskveiðar há-
marki árið 1985 þegar tæplega 400.000
tonn voru dregin á land, þar af 100.000
tonn af dönskum skipum. Árið 1994 var
kvótinn kominn niður í 60.000 tonn,
þar af var hlutur Dana um 15.000 tonn.
Á þessu ári hefur stofninn heldur rétt úr
kútnum enda var heildarkvótinn auk-
inn í 100.000 tonn. En þess verður
langt að bíða að þorskveiðin komist á
svipað stig og áður var.
Þetta hefur leitt til þess aö skip frá
höfnum við Eystrasalt hafa í auknum
mæli sótt vestur á bóginn og reynt fyrir
sér í Norðursjónum. Þar er þó ekki
mikið til skiptanna því Norðursjórinn
er sameiginlegt hafsvæði Evrópusam-
bandsins og þar þurfa dönsk skip að
slást um kvóta við aðrar þjóðir banda-
lagsins.
í þeim slag er ýmsum brögðum beitt
eins og við höfum heyrt af í fréttum.
Takmarkaðir kvótar hafa ieitt sjómenn
út í aö landa afla fram hjá vigt og þegar
ég var á ferð í Danmörku sl. sumar var
verið að fletta ofan af umfangsmiklu
fisksmygli sem viðgengist hafði í
nokkrum höfnum á vesturströnd Jót-
lands. Þar voru veruleg brögð að því að
fiski var landað framhjá vigt og við
rannsókn málsins kom fram að danska
sjávarútvegsráðuneytið vissi af þessu en
þagði þó. Enginn veit hversu umfangs-
mikil þessi iðja er en meðan hún við-
gengst er erfitt að átta sig á raunveru-
legum tölum um aflamagn og verðmæti
hjá dönskum skipum.
Dönskum sjómönnum er kannski
vorkunn því samsetning fiskiskipa-
flotans er þannig að þeir geta ekki
sótt á fjarlæg mið til að bæta sér upp
aflasamdrátt á heimaslóð. Um síðustu
áramót áttu Danir 3182 fiskiskip sem
samtals voru 97.910 tonn. Meðal-
skipið er því ekki ýkja stórt og danski
flotinn taldi ekki nema 211 skip yfir
100 tonn, þar af ekki nema 16 yfir
500 tonn.
Fiskur úr flestum heimshornum
En danskur fiskiðnaður hefur furðu-
vel haldið sjó í þessum aflasamdrætti.
Vissulega hefur fyrirtækjum fækkað og
störfunum sömuleiðis, en ekki eins
mikið og nemur samdrættinum. Skýr-
ingin á því er fyrst og fremst aukinn
innflutningur á ferskum fiski sem
kemur til vinnslu í dönskum fiskiðnaði.
Fyrir vikið hefur hluti þeirra sem misstu
vinnuna í fiskvinnslunni fengið störf í
fyrirtækjum sem flytja inn fisk, en þau
hafa þanist út á síðustu árum.
Peder Hyldtoft, formaður samtaka
danska fiskiðnaðarins, sagði mér að nú
væri meira en helmingur þess fisks sem
unnin er til manneldis í dönskum fisk-
iðnaði innfluttur. „Við flytjum mest inn
frá Noregi en einnig mikið frá Fær-
eyjum, Grænlandi, Rússlandi, Kanada
og Alaska. Raunar kemur fiskur hingað
til lands frá flestum heimsálfum," sagði
Hyldtoft.
Þetta sá ég glöggt í Hirtshals þar sem
ég hitti íslending sem stjórnaði löndun
úr erlendum flutningaskipum. Hann
sagði mér að skip kæmu svo til daglega
frá Noregi og vikulega frá Færeyjum og
Grænlandi en í þeim síðarnefndu væru
oft gámar með rækju frá íslandi. Mesti
vöxturinn í innflutningi hefur verið í
Húsakynni Rahbekfisk í Fredericia á Austur-Jótlandi. Fyrirtækið er 40 ára
gamalt, nú að mestu í eigu Englendinga, og er stærsta fiskréttaverksmiðja
Danmerkur. (Myndir með grein: Þröstur Haraldsson.)
ÆGIR 47