Ægir - 01.01.1997, Blaðsíða 25
„Ég hefá tilfinningunni að það væri hægt
að tengja hákarlsverkun ferðaþjónustunni
á skemmtilegan hátt..."
Hollusta hákarlsins hefur oft veriö
nefnd og segist Lúbvík hafa heyrt talaö
um að duft sem framleitt er úr brjósk-
inu úr hákarlinum sé vörn gegn
krabbameini en laeknar hafi líka ráðlagt
fólki að borða á fastandi maga hákarl
við brjóstsviba og magasári. "Ég hef fyr-
ir reglu að borða hákarlsbita á fastandi
maga á morgnana þegar ég kem á fæt--
ur. Mér finnst það vera óskaplega mýkj-
andi fyrir magann." segir Lúðvík.
Afar mismunandi er hvernig fólk vill
hafa hákarlinn, sumir vilja bragðdauf-
an hákarl á meðan aðrir vilja hafa
hann svo kæstan að þeir standi á önd-
inni. „Verkunin á hákarlinum er eins
og framleiðsla á öðrum matvælum,
hráefnið ræður miklu um hvernig út-
koman verður. Ef að holdið er gott á
hákarlinum þá er líklegra að verkunin
takist vel og útkoman verði góð.”
Hægt að lifa af verkun hákarls
Styrkurinn sem Lúðvík fékk frá Akur-
eyrarbæ til hákarlaverkunarinnar mun
nýtast til að koma upp aðstöbu til verk-
unarinnar og síðan í framhaldinu að
koma þessari starfsemi á framfæri við
ferðaþjónustu og abra. En er þetta verk-
un sem Lúbvík gerir sér vonir um ab
hafa fullt viðurværi af í framtíðinni?
„Það fer allt eftir því í hversu miklu
magni framleiðslan verbur en ég veit
ab ef ég hefði þann markaö sem er á
Eyjafjarðarsvæðinu þá þyrfti ég ekki ab
gera mikið annað. Aðal sölutíminn er
einn mánuður á ári en ferðaþjónustan
er óplægður akur og við þurfum ekki að
skammast okkar fyrir að búa þetta
þannig út að ferðamenn geti séð hvem-
ig hákarlaverkunin fer fram. Bæði ís-
lendingum og erlendum ferðamönnum
finnst þetta forvitnilegt en ég mun
seint geta svarað þeirri spurningu
hvernig hákarlaverkunin hafi komið til
hér á landi í upphafi. Sú ráðgáta verður
að lifa áfram," segir Lúbvík R. Jónsson.
Lúövík R. fónsson með hið rammíslenska sœlgœti, vel kœstan hákarl. Nú fer í hönd sá árstími þegar sala þessarar vöru er hvað mest.
Mynd: JÓH
ÆGIR 25