Ægir - 01.01.1997, Síða 26
enn meðal þeirra öflugustu
Nótaskipið Júpiter ÞH-61 náði fyrr í mánuðinum 40 ára aldri. Þó
útaffyrir sig œtti ekki að vera keppikefli að íslenski flotinn státi afsvo
gömlum skipum þá má með sanni segja að menn beri virðingu fyrir
skipum sem komin eru á þennan aldur, ekki síst þegar um er að rœða
eitt aföflugustu nótaskipum flotans. Útgerð Júpiters, eða Gerpis eins
og skipið hét fyrstu ár sín hér á landi, hefur að sönnu ekki alltafverið
dans á rósum en þau eru til muna fleiri góðu árin en þau erfiðu. Á
síðasta ári sló Júpiter met þegar skipið kom með yfir 50 þúsund tonn
að landi og aflaverðmœtið varð nálcegt 300 milljónum króna. Óhœtt
er að segja að skipið hafi í gegnum árin alltafhaft yfir sér happpablœ
og dregið góða björg í bú eigenda sinna. í huga þeirra sem hafa komið
að litgerð skipsins á einn eða annan hátt þessi 40 ár er ekki spurning
að sá grunnur sem skipið byggir á var lagður strax í upphafi með
góðri smíði.
Þann 12. janúar árið 1957 fékk
bæjarútgerð Neskaupstaðar afhentan
nýjan togara í skipasmíðastöðinni A. G.
„Weser" Werk Seebeck í Bremerhaven í
Þýskalandi. Skipiö fékk nafnið Gerpir
og kom það til heimahafnar í
Neskaupstað fjómm dögum síðar, þann
16. janúar. Nýr og glæsilegur togari, bú-
inn bestu tækni þessa tíma, var sannar-
lega tilefni til fagnaðar í út-
gerðarbænum Neskaupstað og þangað
voru komnir alþingismenn á borð við
Eystein Jónsson, Hannibal Valdimars-
son og Lúðvík Jósefsson til að vera við-
staddir skipakomuna. En skugga bar á
því réttum hálfum mánuði áður
strandaði annar togari
bæjarútgerðarinnar, Goðanes, í mynni
Skálafjarðar í Færeyjum og þar fórst
skipstjórinn, Pétur Hafstein Sigurðsson.
Þetta var mikið áfall fyrir Norðfjörð og
bættist við annað áfall tveimur árum
áður þegar togarinn Egill rauði fórst í
strandi við Grænuhlíð en þar fórust
fimm af skipverjunum. Það ríkti því
bæði gleði og sorg þessa janúardaga á
Norðfirði.
Öllum var ljóst að Gerpir var mikið
skip á íslenskan mælikvarða þessara
ára. Þetta var fyrsti togarinn sem smið-
aður var í Þýskalandi eftir heims-
26 ÆGIR