Ægir - 01.01.1997, Page 29
Fertugt happaskip...
Að upplagi firnavel smíðað skip
segir Lárus Grímsson, skipstjóri
„Júpiter er mjög hæft nótaveibiskip,
öflugt og gott skip. Vafalaust var
skipib einnig mjög gott sem sí&utog-
ari á sínum tíma og þá var þaö ann-
álaö sjóskip en síban er búið ah
byggja mikib ofan á skrokkinn þann-
ig að sjálfsagt hefur eitthvað af hæfi-
leikunum glatast. En grundvallarat-
riði er að Júpiter er að upplagi firna-
vel smíðað skip," segir Lárus Gríms-
son, skipstjóri á Júpiter ÞH-61, um af-
mælisbarnið sem hann stýrir.
Þegar talað er um smíði skipa fyrir
40 árum er fyrst staldrað við samsetn-
inguna en í þann tíð var rafsuöan ekki
oröin ráðandi. Júpiter er þó samsettur
að hluta með rafsuðu en að hluta til
eru plötur í skrokknum hnoðaðar sam-
an. Þetta vekur upp þá spurningu hvort
hnoðin standist ennþá tímans tönn og
saltan sjó. Lárus segir svo vera og til að
mynda var þetta atriði skoöað sérstak-
lega á Júpiter í Póllandi fyrir tveimur
árum og reyndist þá í góöu lagi.
Skrokkur skipsins er upprunalegur og
velta má þeirri spurningu fyrir sér
hvort mörg þeirra skipa sem smíðuð
eru í dag verði í jafn góðu ásigkomulagi
eftir 40 ára notkun eins og Júpiter er.
Eins og fram kemur í samantekt
Fiskifélags íslands á afla skipsins var
hann yfir 50.000 tonn á síðasta ári, eða
meiri en hjá nokkru öðru nótaveiði-
skipi í flotanum. Um 45.000 tonn af
þessu eru loðna og nálægt 6.000 tonn
af síld. Þessum afla náðu skipverjar á
um 8 mánaða útiveru í heild. En annað
met setti Júpiter líka í fyrra því afla-
verðmætið varð meira en loðnu-
veiðiskip hefur áður náð.
Lárus segir árangur byggjast á mörg-
um þáttum, skipi, útgerð, áhöfn og
fleiri þáttum.
„Okkur þykir mjög vænt um þetta
skip og höfum sterkar taugar til þess en
Lárus Grímsson, skipstjóri.
það er gamalt og útaf fyrir sig er sorg-
legt að þurfa að sækja sjó á svona göml-
um skipum. En skipið er búinn að
standa sig og sjálfsagt er hægt að vera
með það í útgerð í nokkur ár í viðbót
en skip á þessum aldri eru vandmeö-
farin og það þarf að huga mjög vel að
öryggismálum og fylgjast með skrokk-
num," segir Lárus.
Undanfarin ár hafa verið mjög
hliðholl útgerðinni og vísast er Júpiter
nú að ganga í gegnum eitt besta skeib
sitt, rekstrarlega séð. Fyrirtækið Skálar
ehf. á Þórshöfn á skipið en það
fyrirtæki er raunar í eigu aðila bæði á
Vopnafirði, Þórshöfn, Bakkafiröi og
víðar.
Þórshafnarhreppur sendir áhöfn
og útgerð Júpíters ÞH-61
árnaðaróskir í tilefni 40 ára
afmælis skipsins. Megi skipið
héðan í frá sem hingað til færa
björg í þjóðarbú.
Þórshafnarhreppur
ÆGIR 29