Ægir - 01.03.1997, Síða 7
Kælitæknifélag íslands:
Norrænt kælitæknimót í Reykjavík í sumar
Dagana 19. til 21. júní í sumar verður
haldið norrænt kæli- og varmadælumót
í Reykjavík. Mótið er haldið á fjögurra
ára fresti og nú í fyrsta sinn á Islandi. A
mótinu verður sérstök áhersla lögð á
meðferð sjávarfangs og verður einn dag-
ur þess helgaður fiskvinnslunni.
Kælitæknifélag íslands stendur að
mótinu í samvinnu við systurfélög í
Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finn-
landi.
Fiskistofa mælist
til viðgerða
á skemmdum körum
Fiskistofa hefur að undanfömu gert
átak í að ýta á eftir sjávarútvegsfyr-
irtækjum að koma skemmdum
plastkörum til viðgerðar. Skemmd
kör eru mjög varasöm í fiskiðnaðin-
um því óhreinindi og bakteríur setj-
ast að í skemmdunum í plastinu og
einangruninni og geta haft áhrif á
matvælin sem í körunum eru.
Halldór Zoega hjá Fiskistofu,
sagði í samtali við Ægi að almennt
hafi tilmælum Fiskistofu verið vel
tekið og fregnir hafa borist um að
mikið af körum hafi komið inn til við-
gerða. Halldór segir að um 100.000
kör séu í notkun í landinu og gefi
augaleið að aðgerðir eins og þess-
ar geti aldrei gert að verkum að öll
skemmd kör skili sér til viðgerðar.
„Menn gera sér alveg grein fyrir
að skemmd kör eiga ekki að vera í
notkun heldur finnst mér þetta frek-
ar vera hugsunarleysi," sagði Hall-
dór. Hann segir Fiskistofu geta not-
að refsiákvæði reglugerðar vegna
skemmdra kara en út í slíkt hafi
ekki verið farið enda tilmælum um
lagfæringar verið vel tekið.
Á fiskideginum sem áður er nefndur
veröa bæði innlendir og erlendir fyrir-
lesarar. Meðal annars koma fyrirlesarar
sem fjalla um kælingu uppsjávarfiska í
fiskiskipum, íslenskir fyrirlesarar fjalla
um gæðakerfi í fiskiðnaði, framtíðar-
kælimiðla í skipum, frsytingu á loðnu
og síld og frá Svíþjóð koma fyrirlesarar
sem fjalla um glasseringu á fiski og
þannig mætti áfram telja.
/---------------------------------
Auk þess efnis sem beint snýr að fisk-
iðnaði verður á ráðstefnunni fjallað um
rannsóknir, náttúruvæna kælimiðla,
varmadælur, matvöruverslanir, mennt-
un fólks í kæliiðnaði og úttektir á
reynslu varðandi ýmsar nýjungar. í
raun verður því fjaliað um allt það
nýjasta sem í boði er á hverju sviði.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
ÞEKKING I ÞINA ÞAGU
Hlutverk Rf er að auka samkeppnishæfni viðskiptavina með
rannsóknum, þjónustu og upplýsingamiðlun. Stofnunin er
leiðandi í matvælarannsóknum og leggur áherslu á öflugt
samstarf við innlend sem erlend fyrirtæki og stofnanir.
Rannsóknarsvið: Á rannsóknarsviði er áherslan lögð á
vönduð rannsóknar- og þróunarverkefni í nánu samstarfi við
viðskiptavini. Sviðið veitir alhliða þjónustu á sviði
matvælaframleiðslu er tekur til umhverfis, hráefnis, vinnslu
og afurða.
Þjónustusvið: Á þjónustusviði er áherslan lögð á ömggar
mælingar og hraða þjónustu. Mældir eru mikilvægustu
gæða- og öryggisþættir í hráefni og afurðum. Ennfremur er
boðið upp á sérhæfða þjónustu, eins og mælingu íblönd-
unarefna og mengunarefna.
llpplýsingasvið: Á upplýsingasviði er áherslan lögð á
alhliða ráðgjöf og upplýsingamiðlun, námskeið og útgefið
efni. Aðgangur að fullkomnasta sjávarútvegsbókasafni
landsins. Ókeypis áskrift að Rf tíðindum og póstlista Rf.
Veffang: http://www.rfisk.is/
Reykjavík • ísafirði • Akureyri • Neskaupstað • Vestmannaeyjum
Rannsóknastofnun
fiskiðnaðaríns
ÆGIR 7