Ægir - 01.03.1997, Blaðsíða 10
er allt það til staðar sem við teljum að
þurfi að vera til að láta fiskvinnslufyr-
irtæki ganga. En púsluspilinu verður
örugglega raðað öðruvísi en gert var
áður," segir Ásgeir Logi.
Samheldni fjölskyldunnar hefur
skilað árangri
Fjölskyldufyrirtæki eins og Sæunn Ax-
els hf. er orðið hefur töluverða kosti, að
mati Ásgeirs Loga.
„Það eru fjölskyldufundir við matar-
borðið tvisvar á dag og við getum sagt
að þetta sé lifandi eining. í svona fjöl-
skyldueiningu höfum við þekkinguna
á hvort öðru og reynsluna í að um-
gangast hvort annað. Við höfum boriö
gæfu til að vinna saman en því miður
hefur sú gæfa ekki alltaf fylgt fjöl-
skyldufyrirtækjum. Þetta atriði og sam-
heldnin hafa skilað okkur þangað sem
við erum í dag," segir Ásgeir Logi og
brosir.
- Hefur það verið markmið ykkar að
stækka fyrirtækið?
„Mér finnst menn vera
farnir að sýna
sjávarútveginum mikið
áhugaleysi."
„Nei, alls ekki. Þessi uppbygging hef-
ur raunar orðið án þess að hún hafi
verið markmið í sjálfu sér heldur hefur
eitt leitt af ööru. Við bræðurnir höfum
allir fengið mörg tækifæri til að snúa
okkur að einhverju öðru í lífinu en við
höfum valið þann kostinn að vinna við
fiskvinnsluna. Ég held áhuginn sé til
staðar í blóðinu.
Þá sjaldan ég hef farið eitthvert í frí
þá hef ég leitað uppi einhverja fisk-
vinnslu eða fiskmarkað til að skoða.
Einhvern veginn er allt sem viðkemur
fiski bæði aðalstarf, tómstundagaman
og lífið sjálft. Og það er gæfa að geta
sameinað þetta allt. Maður þekkir ekki
annað og það er gefandi að geta tekið
þátt í þessu samspili við náttúruna. Nú
er komið að okkur yngri kynslóðinni
að taka taki og bera arfinn áfram," seg-
ir Ásgeir Logi.
Hann telur aö á einhvern hátt fái
sköpunargleöin útrás með starfi í fisk-
vinnslunni því hún bjóði upp á marg-
breytileika og enga tvo daga eins. „Það
berst oft mikill afli að landi og þá er
mikil vinna þannig að mannskapurinn
er þreyttur en þá kjöftum við hvort
annaö bara upp," segir Ásgeir Logi og
hlær.
Stöndum okkur vel í
samanburði við Norðmenn
Ásgeir Logi lagði stund á nám í sjávar-
útvegsfræðum við háskólann í Tromsö
í Noregi frá árinu 1986 og í framhaldi
af því réðst hann til starfa við fisk-
vinnslufyrirtæki í Andenes í Norður-
Hjólin snúast á ný í frystihúsi Ólafsftrðinga þar sem áður var Hraðfrystihús Ólafsfjarðar. Ásgeir Logi Ásgeirsson, framkvœmdastjóri
Brimness ehf., sem tekið hefur vinnsluna á leigu til ncestu fimm ára segir leigutakana ekkert kraftaverkafólk, en ekki sé ástœða til annars
en bjartsýni á framtíðina. Mynd: JÓH
10 ÆGIR