Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1997, Blaðsíða 21

Ægir - 01.03.1997, Blaðsíða 21
Landfrystingin hefur brattann að sækja Þegar horft er á erfiðleika landvinnslu- fyrirtækja sem byggt hafa á botnfisk- vinnslu þarf að horfa nokkur ár aftur í tímann til að skoða þá þróun sem orðið hefur. Óumdeilanlega er stærsta skýr- ingin sú hversu mikiö botnfiskaflinn hefur dregist saman sem best sést af því að hann var 27,5% minni árið 1995 en hann var árið 1988. Á sama tíma minnkaði verðmæti landunnins botn- fisks um 26%. Á undanförnum áratugum hefur frysting og söltun borið uppi land- vinnsluna. Á allra síðustu árum hefur verið heldur meiri uppsveifla í söltun- inni eftir lægð á árunum 1992 og 1993 en á sama tíma hefur frystingin farið niður á við, sé horft til verðmæta á út- fluttum botnfiski. Samanlagt hafa þess- ar tvær greinar borið uppi nálægt 70% verðmæta fyrir útfluttan bolfisk en á allra síðastu árum hefur hlutfallið farið niður undir 60%. Athyglisvert er að á lengra tímabili, eða allt frá árinu 1988 hefur útflutning- Allra sídustu ár verða flokkuð með erfið- leikaárum í botnfiskfrystingunni. ur á ferskum flökum veriö að aukast jafnt og þétt og nam hann 4,3% af verðmætum útflutts botnfisks árið 1995. Ekki er óvarlegt að ætla að þetta hlutfall eigi eftir að hækka því margar smærri vinnslur hafa verið að ná góð- um árangri í útflutningi á ferskum flök- um. Tölur sýna að botnfiskfrystingin hef- Eins og sjá má hefur hlutur sjófrystingar í útfluttum bolfiski aukist verulega á undan- fómum árum. Á sama tíma minnkaði hlutur útflutts ísfisks og einnig hlutur landfryst- ingarinnar. ur verið rekin með miklu tapi á undan- förnum misserum og það skýrir að mörg fyrirtæki hafa orðið að grípa til harkalegra aðgerða, s.s. uppsagna starfs- fólks og jafnvel lokana. Vanda botnfisk- frystingarinnar má kannski líka sjá í tíð- ari sameiningum fyrirtækja sem sjá þann kostinn vænstan til að bregðast við. Önnur hafa reynt að styrkja stoðir sínar í öðrum greinum, eins og t.d. vinnslu á loðnu og síld og loks má benda á að víða er einmitt þessa dagana verið að huga að fjárfestingum og breytingum á vjnnslu í hefðbundum botnfiskfrystihúsum með það að mark- miði að ná arðbærri vinnslu á nýjan leik og tryggja reksturinn. En þó síðustu árin hafi verið erfið, mælt út frá stöðu botnfiskfrystingarinn- ar þá verður ekki annað sagt en þau hafi verið hagstæð í sjávarúveginum í heild. Hagnaður hefur mælst í heild í grein- inni og hvað best hefur afkoman á allra síðustu misserum verið í loðnuveiðum og -vinnslu. SPÓLUROFAR JOHAN RÖNNING HF sími: 568 4000 - http://www.ronning.is ÆGIR 21

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.