Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1997, Blaðsíða 13

Ægir - 01.03.1997, Blaðsíða 13
Byrjað að vinna fisk á ný í frystihúsi HÓ, nú undir merkjum fiskverkunarinnar Brimness. Mynd: /ÓH að vegg með allar sínar eignir þegar kvótanum hefur verið kippt í burtu úr plássunum. Framtíðaröryggi fólks er með þessu rifið upp með rótum og ég skil vel að ungt fólk vilji ekki fjárfesta úti á landi þegar rekstrarumhverfið er svona ótryggt. Menn hafa svo sem ábur pakkað saman í útgerð og farið meb allt sitt en þá tóku bara aðrir við og byggðu upp. Kerfið, eins og það er í dag, leyfir slíkt ekki þannig að hendin er bara höggvin af fólki en ekki brennt fyrir stubbinn þannig að því fær að blæba út í róleg- heitunum." Megum ekki elta Norðmenn í vitleysunni Ásgeir Logi segist setja stórt spurningar- merki við fjárfestingar lífeyrissjóöanna í sjávarútvegi og sömuleibis þurfi Is- lendingar að hugsa sig alvarlega um þegar komib sé út á sjóöabrautina og byrjaö að borga fólki peninga fyrir að loka fiskvinnsluhúsum. „Ég tel okkur þarna hafa verið ab elta Norbmenn í vitleysunni. Þorskkvótinn hefur verib í sögulegu lágmarki hér á landi og þegar þorskurinn vex á nýjan Kominn á ný í frystihúsið Ásgeir Ásgeirsson, faðir Ásgeirs Loga, var á sínum tíma fram- kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Ólafs- fjarðar eftir að hann útskrifaðist úr Verslunarskólanum. Þetta var laust eftir 1960 og stjórnaði hann HÓ um nokkurra ára skeið áður en hann varð bæjarritari Ólafsfjarðarbæjar og síðar skrifstofustjóri útgerðar- fyrirtækisins Sæbergs hf. en hann er einn af eigendum þess fyrirtæk- is. Undanfarin ár hefur Ásgeir stýrt fiskverkun Sæunnar Axels hf. ásamt eiginkonu sinni og fjölskyldu og er nú kominn á skrifstofurnar í húsnæði Hraðfrystihúss Ólafsfjarð- ar þannig að segja má að stundum endurtaki sagan sig. leik þá höfum við úrelt fiskvinnsluhús- in sem eru byggð upp á bestu stöðun- um gagnvart miöunum. Við erum í lægðinni ennþá en hvað gerist ef þorsk- gengdin eykst jafn hratt og gerðist í Noregi. Emm vib hreinlega orbin í stakk búin til að takast á við slíkt?" segir Ás- geir Logi. Einbeitum okkur að því sem við kunnum best Mikið hefur farið fyrir þátttöku ís- lenskra sjávarútvegsfyrirtækja í verkefn- um í sjávarútvegi vítt og breitt út um heim. Sumir hafa kallað þetta stærstu sóknarfæri íslendinga á sjávarútvegs- sviðinu en Ásgeir Logi telur möguleik- ana ekki komna að endimörkum hér heima. „Erlenda sóknin með fjárfestingar er út af fyrir sig kannski ekki alslæm enda þurfa menn að fá að haga seglum eftir vindi. Ég tel samt sem áður að hér heima liggi enn fjöldamörg sóknarfæri í sjávarútvegi og fjölmargir möguleikar lítið eða ekkert nýttir. Við lifum í heimi þar sem margir munnar eru til ab metta og ég held að við gætum enn orðið fær- ari en við erum í að bæta umgengni um hráefnið og nýtingu þess. Ég virði þær skoðanir sem margir hafa að fullvinnsla sé framtíbin og ég skil rökin en ég er ekki sammála. Ab mínu mati þarf að vega og meta kostn- aðinn. Vib erum eyland og tíminn sem þab tekur okkur að koma smápakkning- um með fullunnum vörum á markað- inn er þab mikill að ég set spurningar- merki við hversu langt borgar sig að ganga. Við íslendingar emm færir í fiskveið- um og varðveislu á gæðum fisksins. Vib getum stundað okkar frumvinnslu en ég sé ekki fyrir mér að við veröum stór- ir í fullvinnslu. í einni og einni tegund getum við kannski unnið meira og náb út virðisauka en í heild held ég að við munum eiga erfitt með að keppa við þær þjóðir sem em sterkar í fullvinnsl- unni og kunna það fag til hlítar. Ég held að margir geri sér miklar ranghugmyndir um fullvinnslu. í hug- um margra þýðir fullvinnsla fiskstautar þar sem fiskinum hefur verið velt upp úr deigi og raspi. Þetta er yfirleitt ódýr- asti fiskurinn sem fæst í stórmörkuðun- um og mér finnst augljóst ab menn em ekki að kaupa dýran fisk af okkur til að selja ódýrt. Fullvinnsla getur þýtt margt annað, hún getur til dæmis falist í betri flokkun og yfirleitt öllu því sem felur í sér að skapa meiri virðisauka hér heima. Á þab hljótum við að horfa í framtíð- inni," segir Ásgeir Logi Ásgeirsson. ÆGIR 1 3

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.