Ægir - 01.03.1997, Side 9
„Kvotakerfið ekki fullkomnara
en önnur mannanna verk“
segir Ásgeir Logi Ásgeirsson, framkvæmdastjóri
fiskverkunarinnar Brimness ehf,
Um áramótin var allri vinnslu í
Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar hœtt og þar
með lokað einum afstœrstu vinnustöðum
bæjarins. í þjóðfélagsumrœðunni var bent
á lokunina sem eina sönnun á vanda
landvinnslunnar en vélarnar í sölum HÓ
þögðu ekki lengi því þessa dagana er
starfsemin að komast í gang áný á vegum
fyrirtœkisins Brimness fiskverkunar en það
fyrirtœki tók rekstur HÓ á leigu til nœstu
fimm ára. Sömu eigendur eru að fyrir-
tœkinu og fiskverkun Sœunnar Axels hf. í
Ólafsfirði, hjónin Sæunn Axelsdóttir og
Ásgeir Ásgeirsson og fjórir synir þeirra.
í Olafsfirði
Fiskverkun hófst hjá fjölskyldunni í kjölfar
trilluútgerðar en í dag er starfsemi á vegum
Sæunnar Axels hf. bæði í Ólafsfirði og
Reykjavík og útflutningurinn byggist á
söltuðum og þurrkuðum fiskafirðum sem
seldar eru beint á markaði í Evrópu. Ásgeir
Logi Ásgeirsson, elsti sonur þeirra hjóna,
hefur tekið við framkvæmdastjórn
Brimness og hann segist fullur bjartsýni á
framtíðina enda muni þetta fyrirtæki ekki
fara íþær slóðir sem frystihúsareksturinn í
Ólafsfirði hafi verið í að undanförnu
heldur feta nýjar slóðir og aðlaga sig
markaðnum hverju sinni.
„Auðvitaö blandast saman hjá okkur
ættjaröarást og bjartsýni á framtíðina
þegar við förum inn í þennan rekstur,"
svarar Ásgeir Logi þeirri spurningu hvað
ráði ákvörðun þeirra um að gera tilraun
til að endurreisa fyrirtæki á grunni
Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar.
„Við þekkjum grunninn sem hér er
til staðar, við erum héðan, rekum hér
fiskvinnslu og teljum okkur vita hvað er
til staðar. Hér í Ólafsfirði er að finna
mjög gott fiskvinnslufólk, hæfa starfs-
krafta sem hafa alltaf unnið í fiski og
fólk sem þekkir hvað fiskiðnaður er.
Andrúmsloftið er þess vegna jákvætt,
fólkið vill vinna og samanlagt gera
þessir þættir að verkum að við erum ör-
ugg með flest í starfsumhverfinu þegar
við förum af stað," segir Ásgeir Logi.
Erum ekkert kraftaverkafólk
„Ég finn fyrir miklum byr með því sem
við erum að reyna hér. Lokun á hrað-
frystihúsinu hafbi verið yfirvofandi um
nokkurt skeiö og síðan gekk eftir um
áramótin að rekstrinum var hætt
þannig að fólk er ekkert í vafa um
hvernig aðstæðurnar eru. En vib erum
ekki að taka við þessum rekstri eins og
eitthvert kraftaverkafólk. Við höfum
bara trú á að við getum þetta og viljum
í það minnsta fá að reyna okkur á verk-
efninu og þess vegna var kjörið að
leggja upp með leigusamning. Ef þetta
gengur ekki upp þá geta aörir komið og
fengið ab spreyta sig."
- En þið eruð ekki að fara í sama
rekstur og fyrir var?
„Nei, ég skil ekki til hvers við ættum
ab fara ab gera nákvæmlega þab sama
og hér var gert áður. Ef við eigum að
geta náb arðsemi út úr þessari vinnslu
þá þarf boðleiðin út á markaðinn að
vera stutt og við treystum vel okkar
söluaðilum fyrir því að vera vaskir og
vakandi. Mitt hlutverk hér heima verð-
ur svo að sveigja vinnsluna að því sem
kallab er eftir hverju sinni og af þeim
sökum viljum við ekki líta svo á ab við
séum að hefja hér rekstur á frystihúsi
heldur fiskvinnslufyrirtæki sem mun
móta sér fjölbreytileg verkefni í fiskiðn-
aði. Við erum full bjartsýni og við hefð-
um aldrei farið af stað ef hún hefði ekki
verið fyrir hendi. Þörf okkar á að fara
inn í þetta nýja fyrirtæki var ekki til
staðar heldur réði mestu þau atriði sem
ég nefndi áðan, þ.e. að hér í Ólafsfirði
ÆGIR 9