Ægir - 01.03.1997, Page 11
Noregi þar sem hann varð síðar fram-
kvæmdastjóri. Barátta þess fyrirtækis
hafbi um hríð verið erfið og að lokum
varb það gjaldþrota en Ásgeir og fleiri
starfsmenn endurreistu fyrirtækið og
seldu það síðan inn í annað og er fisk-
vinnslan rekin enn í Andenes.
„Munurinn á íslenskri fiskvinnslu og
norski er fyrst og fremst starfsumhverf-
ið. Fiskurinn var til staðar í Noregi en
þab sem manni yfirsást var einfaldlega
ab stela. Maður kunni það ekki. Fisk-
verðið var ákvebið einhliba af sjómönn-
unum og þá fóru kaupendur út í ab
borga fyrir minna magn en kom raun-
verulega inn.
Að mínu mati er skýringin á erfiö-
leikum fiskvinnslunnar í Noregi á und-
anförnum árum fyrst og fremst sú að
þar er ekki markaðstenging milli hrá-
efnisverðs og afurðaverbs. Eg held líka
að það hái norskum sjávarútvegi hversu
vibamikið styrkjakerfið er. Það hefur
verið koddi sem þeir hafa haft og fyrir-
tækin hafa oft notaö meiri orku í að ná
styrkjum út úr hinu opinbera en til þess
að einbeita sér að rekstrinum sjálfum.
Ég veit af reynslunni að þab er mjög
tímafrekt að ná styrkjunum og þeir nást
ekki nema með mikilli vinnu og skrif-
finnsku. Vel flestir leggja þetta samt á
sig vegna þess að þeir telja aubveldara
ab hafa áhrif á norsk stjórnvöld en á
markaöina. Og fyrir vikið geta þeir frek-
ar skarað eld ab sinni köku með góðum
„lobbýisma" en vinnu að markaðsmál-
unum. Mörg stærri fyrirtækjanna í
norskum sjávarútvegi eru búin ab fá
óhemju fé frá hinu opinbera og þó
styrkirnir megi ekki nýtast í reksturinn
þá eru þeir skýrðir ýmsum nöfnum til
að ekki sjáist hvernig þeir eru nýttir."
Sú spurning vaknar hvort Islendingar
líti af þessum sökum á sjávarútveginn í
Noregi sem óheilbrigðan í samanburði
við þann íslenska. Ásgeir Logi segist
ekki sjá að eitt geti talist heilbrigðara en
annað í þessum efnum.
„Ab okkar dómi er þetta eflaust
óheilbrigt. Við teljum að af því að við
höfum ekki aðgang að styrkjakerfi þá
eigi enginn að hafa það vegna þess hve
styrkirnir hafi rýrandi áhrif á sam-
keppni. Þetta held ég að sé bara önnur
Ásgeir Logi Ásgeirsson rœðir við einn afstarfsmönnum í vintislusal Brimness. Ásgeir
segist taka sem mest þátt í vinnslunni sjálfur enda vanur því frá blautu bamsbeini
að leggja hönd á plóg.
Trillan Kristján ÚF var upphafið að
fjölskyldufyrirtækinu Sæunni Axels hf.
Sæunn Axels hf. er hreinræktað fjölskyldufyrirtæki. Upphafið má rekja til þess
þegar hjónin Sæunn Axelsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson keyptu trilluna Kristján
ÓF árið 1980 en Sæunn réri næstu sumur með sonum sínum. Smám saman
vatt starfsemin upp á sig og byrjað var að kaupa fisk og salta á veturna. Synirnir
komu heim um helgar úr skóla á Akureyri og síðar Reykjavík til að rétta
hjálparhönd en síðan lágu leiðir þeirra sitt í hvora áttina, Ásgeir Logi hélt til
náms í Noregi, Axel Pétur í kvikmyndanám í Frakklandi, Frímann í nám í
Reykjavík og Kristján Ragnar, er nú í Verslunarskóla Islands.
Samhliða því sem fiskverkun Sæunnar Axels hf. byggðist upp í söltun og
þurrkun á fiski varð til nýtt fyrirtæki við hliðina, Valeik hf., en það fyrirtæki keyptu
Ásgeir Logi og félagi hans í Vestmannaeyjum, Helgi Már Reynisson, árið 1990
og í kjölfarið festu þeir kaup á línuveiðiskipi frá Noregi sem fékk nafnið Ásgeir
Frímanns, eftir föðurafa Ásgeirs Loga. Skipið stundaði línuveiðar á tegundum
utan kvóta og var síðan selt en Valeik hélt áfram starfsemi og sér í dag um
útflutning og sölu á fiskafurðum Sæunnar Axels hf. og fleiri aðila og einnig
innflutning á ýmsum vörum. Helgi Már er framkvæmdastjóri fyrirtækisins en
Frimann Ásgeirsson starfar að sölumálunum. Á Spáni og í Frakklandi sér svo
Axel Pétur Ásgeirsson um sölumálin ásamt fleirum þannig að segja má að
fiskafurðir frá Sæunni Axels hf. fari um hendur fjölskyldumeðlima allt frá
vinnslunni og beint til kaupendanna.
Hjá Sæunni Axels hf. starfa nálægt 50 manns, þar af um 20 í Reykjavík. Þar
er fiskurinn frumunninn og síðan fluttur norður til Ólafsfjarðar til lokavinnslu og
útflutnings. Ásgeir Logi hefur stýrt vinnslunni í Reykjavík síðustu tvö árin en flyst
nú ásamt fjölskyldu sinni norður til Ólafsfjarðar til að stýra fiskverkuninni
Brimnesi ehf.
ÆGIR 1 1