Ægir - 01.03.1997, Side 17
Fiskvinnslan hefnr fnlla þörffyrir menntað
starfsfólk og ekki er að búiast við að sú þörf
minnki á nœstu árnm þegar lengra verður
gengið í fullvinnsluátt í vinnslunni.
Mynd: JÓH
Fiskvinnslan í þörf fyrir
menntað starfsfólk
Karl Kristjánsson, deildarsérfræbing-
ur í menntamálaráöuneytinu segir að
seint verði sagt að íslendingar standi
sig vel í framboði náms fyrir fisk-
vinnslufólk en ýmislegt jákvætt hafi
þó verið gert á undanförnum árum.
Hann segir að þrýstingurinn úr grein-
inni sjálfri mætti vísast vera meiri
enda hafi slíkt mikið að segja varð-
andi uppbyggingu náms.
„Það er verið að gera tilraunir í Fisk-
vinnsluskólanum með breytt nám þar
sem gerö er krafa um 53 einingar úr
framhaldsskóla þegar nemendur koma
inn og fyrstu nemendurnir útskrifast
núna í vor. Aðsóknin að náminu hefur
verib of lítil en fer vonandi vaxandi,"
segir Karl og bætir við að á Dalvík sé
líka tveggja ára fiskvinnslunám í boði.
Sú hugmynd hefur einnig komið upp
á yfirborðiö að braut í fiskiðn verbi við
nýjan matvælaskóla í Kópavogi og þar
verði áhersla lögb á vinnslu tilbúinna
fiskrétta, rekstur fiskbúða og þess hátt-
ar. Karl segir þessa hugmynd skammt á
veg komna en hún komi í kjölfar um-
ræðu um aukna áherslu á fullvinnslu í
sjávarútveginum. „Þetta tekur töluverð-
an tíma í undirbúningi og gæti aldrei
litið dagsins ljós fyrr en í fyrsta lagi eft-
ir tvö til þrjú ár," segir Karl.
Hann bendir á að þeir 3-400 fisk-
tæknar sem útskrifast hafa úr Fisk-
vinnsluskólanum hafi komist vel áfram
innan greinarinnar og full þörf reynst
fyrir þetta fólk. „Hins vegar hefði áhug-
inn frá atvinnulífinu, nemendum og
kannski öllum abilum mátt vera meiri á
að gera þetta nám eftirsóttara. Við höf-
um verið að reyna að tengja Fisk-
vinnsluskólann meira atvinnulífinu og
nú er starfandi bakhópur sem í sitja að-
ilar stóru samtakanna í sjávarútvegin-
um og eru þannig ráðgjafar fyrir skól-
ann. Þannig eru stigin skref fyrir skref,"
sagði Karl.
Hvað varðar þörfina á menntuðu
fólki tekur Stefán Stefánsson, deildar-
stjóri háskóladeildar menntamálaráðu-
neytisins, í sama streng. Hann segir að
reynslan af sjávarútvegsdeild Háskólans
á Akureyri sýni vel að þörf hafi verið
fyrir þetta nám og nemendum hafi
gengið vel að fá vinnu að loknu námi
úti í fyrirtækjunum
Stór fisksending
í Dísarfelli
Flutningaskipið Dísarfell var lestað
fiskafurðum þegar það sökk þann
10. mars síðastliðinn. Farmurinn
var liðlega 4000 lestir og þar af um
helmingur frá Islenskum sjávaraf-
urðum hf. Þetta var ein stærsta
sending sem farið hefur í einu frá
framleiðsluhúsum fyriritækisins og
einnig var fiskur frá mörgum öðrum
framleiðendum. Ástæðan fyrir
þessu mikla magni sjávarafurða var
fyrst og fremst sú að óttast var um
verkföll hér heima fyrir og einnig
hitt að kaupendur erlendis voru að
tryggja sér afurðir til sölu fyrir pásk-
ana.
í mörgum framleiðsluhúsum hef-
ur því verið mikið að gera síðustu
daga við að framleiða upp í pantan-
ir í stað þess sem fór í hafið. Þeir
sem blaðið hefur rætt við teija ekki
ástæðu til að ætla að þetta hafi
áhrif á markaði erlendis enda fullur
skilningur á að enginn mannlegur
máttur gat komið í veg fyrir þetta
sviplega slys.
ik llll
HRAÐASTÝRINGAR
JOHAN
RÖNNING HF
simi: 568 4000 - http://www.ronning.is
ÆGIR 1 7